Hvað er þetta orðið með salt í matvælum?

Hvað er þetta eiginlegameð salt í matvælum frá afurðastöðvunum hér á landi? Eru framleiðendur að verð vitlausir eða missa þeir sig gjörsamlega með saltpokann þegar komið er að þeim áfanga í framleiðsluferlinu? Mikið er rætt um sykurnotkun hér álandi þessa dagana en hvað er þetta með saltið?Saltið í svona miklu magni er orðið hættulegt heilsu manna og var nú ekki á það bætandi sem fyrir var.Er verið að svindla á fólki með þessum salt austri til að koma meira vatni í kjötið svo þyngdin verði meir eða hvað er verið að meina með þessu? Um síustu jól var keypt hér á heimilinu bæði Hamborgarhryggur og hangikjöt,hvor tveggja var áætt vegna saltsins og fór í hundana(í orðsins fyllstu) ...:)fólk gat ekki borðað þetta,þetta var eins og óúyvatna saltkjöt eða saltfiskur....brimsal og óætt....nú í vor verslaði ég pakka af skinku og pakka af maltbrauði. Daginn eftri fékk ég mér maltbrauðsneið með skinku og henti því í hundana(hvers eiga þeir að gjalda greyin)...)það var eins og borða brimsalt kjöt,gjörsamlega óætt vegna salts. Nú í vikunni verslaði ég léttreykta aligrísabóg og var hann hafður í matinn á Uppstigningardag.Allir við borðið höfðu orð á þessu og gáfust upp,þetta fór í hundana og meira að segja gáfust þeir upp eftir hálfan bóginn.....en drukku þrjár skálar af vatni þegar líða fór á daginn...... er þetta eðlilegt? Er þetta leyfilegt? Eru engar reglugerðir til um notkun á salti í martvæli hér á landi? Það er orðin þvílík ofnotkun á þessu að matvæli sem fólk er að kaupa dýru verði hér á landi eru óæt fyrir bragðið.Það verður sko bíð á því að ég þori að kaupa eitthvað reykt og saltað í matinn á mitt heimili,mér finnst þetta alltof dýrt til þess að eyða tíma í að elda þetta og henda því svo. Ísland er ekki þekkt fyrir að hafa ódýr matvæli til sölu og matvælin verða heimilunum enn dýrari ef það þarf svo að henda þeim hvað eftir annað vegna vinnslumeðferðar hjá afurðastöðvunum. Er þetta nokkuð hollara en og mikill sykur? Ég held ekki.

Og fór það kannski ekki fram í nafni guðs föðurs,sonar og heilags anda?

Þá er nefndin búin að skila skýrslu af sér,nefndin sem skipuð var árið 2000 á Írlandi og átti að fara yfir mál er komu upp um misnotkun á börnum er voru vistuð á heimilum er rekin voru af Kaþólsku kirkjunni.Á þessi heimil voru send börn sem hnupluðu t.d. mat vegna fátæktar eða skrópuðu í skóla,allt smá afbrot .Börn sem brutu má segja ekkert af sér.En á þessi heimili fóru þau og átti að gera þau að betri manneskjum.Þarna voru þau misnotuð og refsað af prestum,nunnum og öðru starfsfólki Kaþólsku kirkjunnar. Barinn af hörku,pyntuð,svelt og misnotuð kynferðislega.Og drengir meira en stúlkur. Írskt þjóðfélag er ramm Kaþólskt og hefur Kaþólkska kirkjan ráðið því um aldir með öllum sínum fordómum og hörku.Fólki hefur verið haldið til baka og í sárri fátækt allt fram á síðustu öld.Síðusu heimilunum sem kirkja rak var lokað í kringum 1970 eða rétt uppúr því.Og nú hefur komið í ljós(eins og mann grunaði að vísu) að yfirmenn kirkjunnar og páfinn vissu af þessu en þögðu. Þetta kemur skýrt fram í áðurnefndri skýrslu sem byrt var í gær frá nefndinni. Já hún hefur margt afrekað þessi blessaða kirkja með afturhaldsemi og fordómum.Stuðlað að fátækt,fáfræði og dauða milljóna manna í gegnum tíðina og makað krókinn á auðtrúa sálum uppá mörg hundruð milljarða enda er Vatikanið í Róm ríkasta ríki heims. Vatikanið í Róm greyðir um 64 milljarða á ári hverju til fórnarlamba kaþólsku prestanna og biskupanna víðs vegar um heiminn. Og kirkjan heldur áfram í glæpastarfseminni .......í nafni guðs föðurs,sonar og heilags anda. En það leiðinlegasta kannski við þetta allt saman er að mannkynið eða stór hluti af því hefur ekkert lært í gegnum aldirnar,það trúir enn á þetta og heldur sig við þetta......Amen.

Kominn tími til og þó fyrr hefði verið.........

Já það var komin tími á það að einhver sem hlustað er á tæki sig til og segði sýna meiningu.Hræsnin og ómerkilegheitin hjá þessari stofnun með Páfann í broddi fylkingar ríður ekki við einteyming.Þessi stofnun hefur stuðlað að dauða milljóna manna í gengum tíðina vegna fordóma og afturhaldsemi. Milljónir manna fá ekki að lifa eðlilegur lífi vegna þessa,fólk deyr vegna þessa,börn eru misnotuð vegna þessa,prestar brjóta afsér vegna þessa og svo rakar þetta inn eignum og peningum frá auðtrúa sálum og hefur gert svo um aldir.....og allt í nafni trúar.

Kominn tími til að láta karl skrattann heyra það,það þyrftu fleiri að gera það. Tek ofan fyrir Cörlu Bruni.


mbl.is Gagnrýni Bruni einsdæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt með glýju í augum........hallelújakór

Finnst það bara nokkuð skondið þegar maður rennir yfir bloggið og skoðar skrifin hjá þeim sem eru harðir stuðnings og fylgismenn VG..... það er alveg sama hvað kemur frá VG eða kemur ekki, það er toppurinn,það er allt í gangi og bullandi keyrslu þar á bæ,allt fullkomið og mikið verið að gera þó ekki sé verið að gera neitt eða verið að gera eitthvað neikvætt. Hvað fékk þetta lið í augun eða tók það eitthvað inn? Er það á einhverju? Hvernig er hægt að vera svona blindur? Þetta minnir mig á fylgisfiska heittrúaðra hjá sumum trúflokkum sem fylga bara sínum manni (flokk)eftir í blindni...svona "halleluja kór og hlýða......og allt sem þaðan kemur er heilagt,rétt og satt. Skildi þetta "blinda" lið verða jafn hamingjusamt,ánægt og sátt þegar skattarnir þess hækka og allt annað sem framundan er og búið að að boða eða tala um? Það verður fróðlegt að sjá skrifin hjá þeim þá.

Finnst fólki allt ganga vel og allt hafa lagast?

Spyr nú sjálfan mig þessara spurninga þessa dagana. Hvað finnst fólki hafa breyst við mótmælin,stjórnarslitin og nýjar kosningar annað en að þetta kostaði gjaldþrota þjóð um milljarð með öllu þegar upp er staðið. EKKERT akkurat EKKERT...........nei það hefur nefnilega ekkert breyst annað en það að Vg komust í stjórn og þá tekur við hvað?    jú meiri höft,afturhaldsemi og skattahækkanir....sem jú við þurfum endilega á að halda núna enda svo vel haldin eftir gengishrun og bankahrun......Hér er engin stöðugleiki,gengið á gjaldmiðlinum okkar lækkar ekkert,vextir lækka ekki,ekki stýrisvextir,ekki verðlag. Það hefur hækkað um meira en 25 % sl.ár og hækkar enn (VG ætla svo að bæta við það með hærri sköttum) verðbólgan lækkar lítið,afborganir lækka ekki og svo mætti áfram telja. Til að bæta svo ástandið (á verri veg) þá eru skuldir gömlu bankanna skildar eftir í þrotabúunum en skuldir okkar almennings fluttar yfir í nýju bankana og þeir halda áfram að rukka okkur með okurlánum og okurvöxtum og allt í þágu og nafni Ríkisstjórnarinnar. Og svo þykist Ríkisstjórnin vera að gera ýmislegt til að bjarga heimilunum frá því ástandi sem hún sjálf stuðlar að að þau séu í. Hversu vitlaus erum við? Hvað er hægt að bjóða okkur uppá mikið og hvað?...endalaust?.....nei það hefur sko akkurat ekkert breyst,við almenningur eigum að borga brúsan og þegja og um leið þykist stjórnin vera að bjarga okkur frá örbyrgð.

Hvar eru harðlínu feministar,rauðsokkurnar og kvennahreifingarnar núna?

Svo skrítið sem það nú er þá heyrist ekki frá þessum hópum núna sem alltaf eru básúna út um allt um  jafnrétti. Hvar eru þessir hópar núna? Forseti Alingis er kona og allir varaforsetar þingsins eru konur!!

Er þetta jafnréttið sem þessir hópar eru að biðja um? Afhverju heyrist ekkert frá þeim núna? Ég er viss um að það hefði heyrst vel frá þeim öllum og það hátt ef þetta hefðu eingöngu verið karlar í þessum embættum.


Þingmenn á skólabekk........

Já það er bara ágætt mál að sýna og kenna nýjum aðilum á störf þingsisns. Og þarft mál var að leggja þessa hallærilegu bindisskildu af hjá körlum. Konur hafa klætt sig eins og þær vilja þarna niðurfrá hingað til,sumar alltaf snyrtilegar og aðrar eins og druslur en körlum sett ströng skilyrði.....jakkaföt og bindi.........skildi "Rauðsokkum og feministum" á þingi ekki hafa fundist þetta vera mismunun á milli kynja? Aldrei hef ég heyrt neitt um það frá þeim! Svo væri nú ekki vitlaust að kenna fólki framkomu og ræðumennsku því það er fátt leiðinlegra að hlusta á menneskju í ræðustól sem er málstirð og tafsar á orðum um leið og hún týnir þau upp eitt og eitt á löngum tíma.....sá einstaklingur kemur engu til skila þar sem hann er löngu búinn að missa alla athygli og fólk er hætt að hlusta,maður einfaldlega nennir ekki að bíða eftir á viðkomandi ljúki máli sýnu. Og trúið mér,það eru margir slíkir einstaklingar þarna niður frá . Í lokin mætti svo benda á þessi ávörp í ræðustól....þar er ég sammála Þór Saari frá Borgarahreifingunni. Það er alveg yfirmáta gamaldags og hallærislegt,fyrir utan hvað þetta er leiðinlegt að hlusta á þetta sífelda kjaftæði.....  hæstvirtur þetta og háttvirtur hinn....alveg kominn tími á að hætta þessu og leggja þetta af.Þetta er bara froðusnakk sem enginn nennir að hlusta á og engin tekur mark á.   Eða hvernig hjómaði þetta hér um árið? Tek bara svona sem dæmi......hæstvirtur forsætirráðherra...þú ert með skítlegt eðli......ber einhver virðingu fyrir einstakling með skítlegt eðli? Eða þegar Steingrímur J.kallaði  ráðherra í einum flokknum hér um árið druslur....er hægt að vera háttvirt drusla þarna á þinginu? Endilega breytið þessu sem fyrst því það tekur enginn mark á þessu hvort eð er,þetta er leiðinlegt að hlusta á þetta froðusnakk og þetta er  "so eitthvað 2008" ..................  :)

Ekki gerðar miklar kröfur..........

Það er svolítið sérkennilegt þegar spáð er í hlutina hvernig þetta gengur fyrir sig á Alþingi Íslendinga. Þetta er æðsta stofnun landsisns,þarna eru teknar miklar og stórar ákarðanir og á stundum alvarlegar sem snerta alla þjóðina og þjóðarbúið í heild og snúa að hag okkar allra en það virðist sem engar kröfur séu gerðar til fólks um að það kunni eitthvað fyrir sér eða hafi einhverja reynslu  þegar skipað er í ráðherrastóla,nefndir,embætti og fl. á vegum Alþingis. Þarna er verið að vinna að málum sem snerta alla þjóðina og þjóðfélagið í heild sinni,þarna er verið að úthluta og skipta sameiginlegum sjóði landsmanna. Á ekki að gera lágmarks kröfu um að fólkið sem vinnur þessi störf hafi vit og reynslu í því sem það er að gera? Eins og nýleg dæmi sýna og hefur verið oft áður þá getur bara fólk fengið ráðherraembætti si sona ,fólk sem aldrei hefur verið á þingi áður eða komið nálgæt þingstörfum. Sama má segja um ýmis störf er tengjast þinginu og skipað er í. Er ekki lágmarks krafa um að einstaklingar sem settir eru í þessi embætti hafi jú einhverja reynslu? Og viti hvað þeir eru að gera? Það eru gerðar kröfu um allt þjóðfélagið um menntun og reynslu í öll möguleg störf sem auglýst eru laus og til umsóknar en það er sem virðist engin krafa gerð til neins sem fer á þing eða í bæjarstjórn eða  borgarstjórn? Svo getur þetta fólk bara tekið ákvarðanir eftri eingin geðþótta þótt það bitni á almenningi í vitlausum laga og reglugerðum oft á tíðum sem og að eyða milljónum í kannski vitlaeysu og tekur svo enga ábyrgð á gerðum sínum. Er það ekki svolítið skrítið að gera engar kröfur til þessa fólks sem fer með öll völdin og peningana sem þjóðin á?

Áfram Ísland !

Já ég verð að segja það að ekki bjóst ég við því að við kæmumst áfram í Eurovision úrslitakeppnina á laugardaginn kemur.....finnst lagið okkar fallegt og mjög vel flutt að ekki sé talað um gullfallegan söng en eina ferðina enn hjá okkur of "hægt og hljótt" fyrir svona keppni en það er jú bara mín skoðun....allavega til lukku með þetta Íslendingar og gott gengi á laugardaginn kemur í Moskvu.

Kvennremba og feministar..............

Hefði nú haldið að það væri ekkert skárra að vera kvennremba en karlremba en skoðanir ýmissa aðila sýna að svo sé enda virðist það vera allt annað mál. Feminsti er úreltur og ekkert annað en öfgasamtök,uppfullt af fordómum og karlahatri eða allavega virðast margfir innan þeirra raða vera þannig. Held að þetta fólk sem lætur svona sé illa haldið af minnimáttarkennd....hugsunin virðist vera sú...aumingja konur,vesaling konur...alltaf bitnar allt á þeim,þær eru misnotaðar,þær verða fyrir ofbeldi,þær fá ekki feiturst stöðurnar eða bitana.Aumingja ég,aumingja við alltaf er hallað á okkur. Hvað skildi valda þessu? Er það ekki bara þaðiðað konur hafa þetta ekki í sér eins og karlar og koma sér bara ekki á framfæri að eigin verðleikum eða hvað veldur? Hver stoppar konu af í dag? Geta konur ekki farið í það nám sem þær vilja? Sótt um þau störf sem þær vilja? Gert það sem þær vilja? Hverjir stjórna heimilum í dag og hafa alltaf gert?Hafa karlar reynt að taka það af þeim? Hver stoppar konur af? Eru það ekki bara þær sjálfar og bera sig einfaldlega ekki eftir björginni? Eða hafa ekki áhuga? Svandís Svarsdóttir segist vera ósátt við að ekki hafi verið jafnt skipt á milli kynja í nýrri ríkisstjórn sem mynduð var sl.sunnudag. Sóley Tómasdóttir öfgafeministi segir það sama í mbl.í dag að Steingrímur (þá sjálfsagt karlremba)hafi ekki farið eftir því sem VG fylgi eftir og standi fyrir þ.e. "feminiskum"gildum og það sé karlaslagsíða í nýju ríkisstjórninni.Sóley karlahatari og öfgafeministi virðist standa í þeirri trú að hún sé eingetin og hafi tekið við af Jesú sjálfum eftir að hann varð frumgetinn. Staðreyndin er sú að VG fengu 5 sæti í nýju ríkisstjórninni til að fylla í eins og SF,hvernig er hægt að hafa jöfn hlutföll á milli kynja með 5 manns? Annað hvort verður að vera 3 karlar og 2 konur eða 3 konur og 2 karlar. Er það kannski það sem Svandís og Sóley eru að meina? Að jafnréttið sé það að það hefðu átt að vera 3 konur og 2 karlar? Kallast það þá ekki forréttindi að konur séu bara ráðnar vegna þess eins að þær eru konur? Eða hvernig mundu Svandís og Sóley skipta 5 sætum svo úr yrðu jöfn hlutföll á milli kynja? Hefði þá ekki verið nær fyrir formenn þessarra tveggja flokka að taka ekki inní stjórnina utankomandi einstaklinga og hafa úr að moða 6 sætum hver fyrir sig. Þá hefðu bæði Svandís og Sóley geta orðið ánægðar. En það á ekki að skipta neinu máli hvort kynið það er,það hefur ekkert með jafnrétti að gera enda berjast feministar ekki fyrir jafnrétti,þeir berjast fyrir forréttindum og það er allt önnur "ella" Það eiga allir að fá sömu laun fyrir sömu vinnu og það á enginn að fá starf útá kyn sitt. það á ekki að skipta neinu máli hvort það er karl eða kona sem er í starfinu,stjórninni eða sem yfirmaður.Kynið á ekki að skipta neinu máli,sá hæfasti á að fá starfið. Það verður aldrei friður eða sátt um eitt eða neitt með svona öfgum.


mbl.is Karl stendur upp fyrir konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband