Ákæra fyrir tilraun til manndráps

Það er marg oft búið að skrifa.tala um og útskýra hvða það getur þýtt og kostað að sparka hvað eftir annað í höfuð manns og hvað þá að stappa eða hoppa ofan á höfuðuið.

Slíkt getur kostað dauða eða heilablæðingu og skaða fyrir lífstíð.

En margir láta sér ekki segjast og eru sennilega sovna heimskir

eða þeir kunna ekki að lesa eða skilja ekki einfaldar útskýringar því þetta kemur reglulega upp að sparakð sé svona í höfuð manna.

Þetta er hrein og klár tilraun til manndráps og á að dæma menn samkvæmt og eftir því.


mbl.is Stappaði ofan á höfði manns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er vælt og kvartað yfir öllu

Það segir bara heilmikið um þann einstakling sem nennir að eyða tíma sínum í svona lagað.

AÐ kæra RUV fyrir að birta áfengisauglýsingu er "lame" en vonandi finnur viðkomandi eitthvað á næstunni sem er þarfara en þetta til að fylla upp í líf sitt.

Og bann við áfenmgisauglýsingum árið 2016 segir bara allt um hvernig hlutirnir eru hér.


mbl.is RÚV sektað um 250.000 kr.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löglegt rán um bjartan dag

Hún tók 12 milljónir í lán fyrir 8 árum síðan eða 2008. Hún hefur borgað af þessu láni sem sagt5 í 8 heil ár og hvbða hefur hún eignast?

EKKERT akkurat EKKERT því hún skuldar 15,4 milljónir af þessum 12 milljónum sem hún tók fyrir 8 árum síðan.

Síðan vill Íbúðarlánasjóður fá 1,4 milljónir króna í viðbót fyrir umsýsluþóknun vegna uppgreiðslu á láninu...............það er ekki nóg að ræna almenning daglega árum saman og jafnvel hirða af þeim eignirnar á uppboðum ef þeir geta ekki staðið undir afborgunum þessu ráni héldur skal bætt í og stolið 1,4 milljónum í uppgreiðslugjald.

Fyrir hverja er þessi sjóður? Í það minnsta er hann ekki fyrir almenning í landinu og þetta eitt er meðal annars ein af ástæðunum fyrir því að alþingismenn og alþingi nýtur ekki álits,trausts eða virðingar hjá stærstum hluta þjóðarinnar. Það sitja þarna 63 hræður og kalla inn varamenn lon og don og allir á blussandi launum og alskonar bitlingum og aukagreiðslum en þa ðer t.d. enginn sem tekur á þessu máli.

Ef einstaklingur rænir banka þá er kölluð til þungvopnuð sérsveit ríkislögreglunnar og mikil leit hefs ef viðkomandi kemst undan en ef banki eða sjóður rænir einstakling þá er það allt í lagi og bara löglegt.

Við búum í hreint alveg ömurlega spilltu og ljótu samfélagi hér árið 2016.


mbl.is Þarf að greiða 10% uppgreiðslugjald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gungur og lyddur.............

Að íslensk stjórnvöld skildu ekki fara í hart gegn Bretum þegar þeir settu hryðjuverkalög á íslensku þjóðina sýnir hvers konar gungur og undirlægjur þarna voru á ferð.

Ég held því fram að ef Davíð Oddsson hefði verið forsætisráðherra á þessum tíma hefði margt farið öðruvísi og Bretum hefði aldrei liðist þessi framkoma.

Að setja okkur í sama flokk og Al Kaida,Bogo harem og fl.hryðjuverkalið verður aldrei fyrirgefið...aldrei.


mbl.is Íslendingar í efnahagslegu stríði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafnrétti og misrétti verður þeim ekki til framdráttar

Þessar hrókeringar,misrétti á hlut karla í stjórn og valdbrölt verður þessu félagi VÍS ekki til framdráttar nema síður sé.

Og ða Lífeyrissjóðirnir skuli svo vera að taka þátt í þessu sýnir manni bara hvernig að málum er staðið og að almenningur hafi haft rétt fyrir sér.

Valdabrölt,spilling og græðgi.


mbl.is Herða tök sín á VÍS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það eru 36 ár síðan

Hún segist muna vel eftir því þegar Vigdís stóð á svölunum heima hjá sér og horfa til hennar þegar hún hlaut kosningu............það eru 36 ár síðan og miklar framfarir orðið eftir það sem og breytingar um allan heim,ekki síst hér á landi eins og t.d. eitt stk hrun og fl.

Persónulega finnst mér það ekki traustvekjandi að horfa um öxl og alls ekki 36 ár aftur í tímann þegar fólk bíður sig fram til forseta.


mbl.is Sárið í samfélaginu enn til staðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stendur UNICEF fyrir að setja rusl á strendur landsins?

Er ekki sérstakt að samtök eins og UNICEF standi fyrir atburði sem veldur mengun við strendur landsins og hvetji til slíks?

Verða þessir bangsar látnir liggja þarna áfram þar til þeir eyðast eða þeim skolar á haf út?

Hefur verið athugað hvaða efni eru í þessum böngsum eins og t.d. plast og önnur gerviefni sem eru óæskilega fyrri náttúruna?

Myndin af litla drengnum Aylan Kurdi var hroðaleg og snerti okkur öll en það hafa bara svo mörg hundruð og eða þúsundir barna fallið vegna þessa stríðsbrölts í því miður vel gefnum fullorðnum mönnum þar sem allt snýst um völd,peninga,græðgi,siðleysi og siðblindu og þessi gjörningur hvorki stoppar þetta brjálæði af né færi okkur börnin og alla saklausu borgarana sem hafa látið lífið í þessari geðveiki aftur.

Það hlýtur að vera hægt að standa að minningum um þetta fólk á annan hátt en svona.


mbl.is 400 bangsar við ströndina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki rétt,WOW hefur ekki sloppið.

Þetta er ekki rétt sett fram í þessari frétt að WOW hafi sloppið við umtal eða slæmt umtal því margir hafa og eru að einmitt að ræða þetta núna hvernig það gengur fyrirsig að kaupa flugmiða með þessu lággjaldaflugfélagi.

Og það verður WOW örugglega ekki til framdráttar að fá þennan mann til ´sin miðað við hvað hann er óvinsæll eftir dvölina hjá Spirit.

Ég er t.d. einn af þeim sem nenni ekki að standa í þessu og þegar upp er staðið munar ekki svo miklu á fargjaldinu enda sífellt verið að rukka inn fyrir eitthvað sem er innifalið í miðanum hjá öðrum.

Að rukka sér fyrir handfarangur og tösku eins og nú er gert.......common..hver fer í frí með kreditkortið og bara í því sem hann er klæddur?


mbl.is Óvinsæll forstjóri til WOW
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir bakka ekki

Þeir munu ekki bakka því það virðist sem svo að það sé álithnekkir að játa það að hafa haft rangt fyrir sér.

En við skulum sjá hverjir verða fyrir álithnekki þegar allt er komið í vitleysu þarna við Hringbrautina og enn eitt milljarða klúðrið er komið upp sem svo engin ber ábyrgð á.

Þarna á eftir að vera umferðavandamál næstu áratugina


mbl.is Breyta þarf ákvörðuninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Metin á 200.000 kr

Ja ekki var nú æran hjá viðkomandi mikils metin.....................aðeins 200.000 kr


mbl.is Látin tæma vasa í versluninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband