Hvenær verða þessir menn dæmdir......

Hvenær skildi renna upp sá dagur að þessir árásarmenn verða dæmdir fyrir tilraun til manndráps en ekki fyrir líkamlega árás eða annað? Að veitast svona tveir eða fleiri að einni manneskju og ítrekað kýla viðkomandi þar sem hann liggur óvígur,sparka í höfuð fólks eins og við lesum um hvað eftir annað í fjölmiðlum,nota hnúajárn,hnífa,axir,sleggju,kylfur og fl.vopn hvað er þetta annað en tilraun til mannsdráps sem í flestum tilfellum sem betur fer mistekst? Það á að dæma þessa vitleysingja því jú það eru vitleysingjar sem haga sér svona, hart og dæma þá fyrir alvarlega tilraun til manndráps af yfirlögðu ráði og ef fórnarlambið deyr eins og hefur gerst þá að dæma þá fyrir morð af yfirlögðu ráði og enga miskunn.Þetta lið þarf að fara af götunum enda stórhættulegt almenningi og sér sjálfu.
mbl.is Settist klofvega yfir óvígan og kýldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

svona menn eru ekki dæmdir á Íslandi og þessvegna er þjóðfélagið eins og við sjáum í dagblöðum daglega. Hvet fólk til að flytja til Noregs. Alfarið.

Eyjólfur Jónsson, 29.7.2014 kl. 11:29

2 Smámynd: corvus corax

Svona skíthælar eins og þessir árásarmenn eru dæmigerðir hugleysingjar sem þurfa að vera fleiri saman til að ráðast á einn. Heilalaus merarhjörtu, það er það sem þeir eru!

corvus corax, 29.7.2014 kl. 20:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband