Fylkjum liði öll saman.

Kannski þetta séu tíðindin sem munu hleypa öllu upp í íslensku þjóðfélagi eins og Völvan spáði fyrir um vegna ársins 2015?

Hver veit!

En þetta þarf að rannsaka ofan í kjölin og almenningur þarf að fylkja sér að baki Víglundar Þorsteinssonar því hann virðist einn hafa áhuga á að grafast fyrir um þetta og koma hlutunum upp á yfirborðið.

En sé þetta rétt þá þurfa bæði Jóhanna Sig. og Steingrímur J. að svara til saka og upplýsa þjóðina hvað þeim gekk til með þessu öllu.

Hefði ég eða þú gert þetta værum við örugglega sakaðir/sökuð um landráð og jú ef þetta er rétt þá eru þetta hrein landráð. Að plotta svona,ljúga og fela fyrir sinni eigin þjóð og koma mörg hundruð milljörðum á bakið á henni eru ekkert annað en landráð og á að dæma eftir slíku.Með þessum gjörningi missti margt fólk allt sitt og húsnæðið líka.

Þúsundir gáfust upp og fluttu til annarra landa og sér ekki fyrir endann á því ennþá því enn eru áhrifa af hruninu að koma fram hjá fólki og fólk sem gat þraukað er búið ða gefast upp núna.

Það var ekki nóg að það átti að troða Icesafe reikningunum ofan í kokið á þjóðinni heldur er plottað gegn henni vegna bankanna og hrægammasjóða líka.

Það er löngu kominn tími til að fríska uppá og dusta rikið af "Helvítis fokking fokk" skiltunum og mæta niður á Austurvöll......við eigum ekki að láta bjóða okkur uppá þetta sukk,spillingu,viðbjóð og lýgi lengur.


mbl.is Stórfelld svik og blekkingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Kristján Hjaltested

Sorrý...

Þeir sem mættu niður á Austurvöll til að mótmæla, eru farnir til annarra landa. Eftir sitja þeir sem trúa því að þetta bara "reddist".

Sigurður Kristján Hjaltested, 23.1.2015 kl. 21:22

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Sigurður, þetta er ekki rétt það sitja tveir hópar eftir í landinu.

Annar þeirra er vissulega sá sem þú nefnir, en þú gleymir hinum.

Það eru þeir sem eru hérna ennþá að vinna gegn óréttlætinu og að farið verði eftir reglum réttarríkisins hér á landi. Þar á meðal menn eins og Víglundur, og aðrir sem eru í raun að vinna í þágu ykkar í hinum hópnum sem sitjið bara á höndum ykkar og vonið að þetta "reddist".

Hér er tilvitnun úr 1. gr. stjórnarskrár Tennesee ríkis í BNA:

Andstöðuleysi gegn gerræðislegri valdbeitingu og kúgun er fáránlegt, þrælslegt, og eyðileggjandi fyrir velferð og hamingju mannkyns.

Guðmundur Ásgeirsson, 24.1.2015 kl. 13:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband