Bloggfærslur mánaðarins, október 2014

þjóðin á að fá að segja til um þetta vopnamál

Sjálf þjóðin á að fá að tjá sig og kjósa um þetta vopnamál lögreglu. Þessi vopn verða jú notuð gegn einhverjum af okkur sjálfum geri ég ráð fyrir ef þau komast í bíla lögreglunnar sem og við borgum þessi vopn ef til kemur en það eru víst misjafnar sögurnar sem fara af því hvort þau eru gefins,greiðist í peningum eða með vinnu (fer eftir því við hvern er talað) og ekki síst þá borgum við laun lögreglunnar svo við höfum heilmikið um þetta mál að segja.
mbl.is Dagur fundaði með lögreglustjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Refur eða hundur.

Eru þetta ekki bara spor eftir hund sem finnast þarna?
mbl.is Rauðrefur á Þingvöllum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stöðugt logið.

Er þetta þá öll blankheitin og vælið í fjölmiðlum um að draga saman seglin vegna niðurskurðar? En það er hægt að kaupa vopn til að nota á eigin þjóð fyrir á tólftu milljón. Með svona framkomu hafa þessir menn ekki þjóðina á bakvið sig eins og alltaf er verið að tala um,nei þið fáið þjóðina á móti ykkur með því að vera að fela hlutina fyrir henni og ljúga að henni,
mbl.is Gæslan keypti hríðskotabyssur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir eru að ljúga að okkur?

Hverjir eru að ljúga að okkur íslenskum borgurum,ríkislögreglustjóraembættir sem við eigum að trúa og treysta,landhelgisgæslan sem við eigum líkas að trúa á og treysta eða eru sjálfir Norðmenn að ljúga að okkur?

Talsmaður noirska hersisn segir að byssurnar hafi verið keyptar og borgaðar 625 þús norskar krónur fyrir þær. Ríkislögreglustjóri segir að þær hafi verið gjöf og  ekki hafa borgað fyrir þær og muni ekki kaupa þærog landhelgisgæslan segir að þetta hafi verið fengið upp í vinnuskipti og utanríkisráðpherra veit ekki neitt.

Þetta er einn alshrrjar lygapottur virðist vera sem kraumar vel  í núna og enginn kannast við neitt og eins og séríslenskt er,enginn axlar ábyrgð á neinu en allir tilbúnir að ljúga  og þessar stofnanir eigum við að styðja,treysta og trúa á.


mbl.is Stóð aldrei til að kaupa vopnin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sérstök hugsun

Það er svolítið sérstök hugsun svo ekki sé meira sagt að stryðja það að vopna almennu lögregluna hér á landi og það heldur ekki með neinum smá vopnum heldur sjálfvirkum hríðskotabyssum. Það verður fróðlegt að sjá hvað frú Hirst skrifar á facebook síðuna sína þegar fyrsta fórnarlambið liggur í valnum sundurskotið af íslensku lögreglunni.
mbl.is „Getum ekki stungið höfðinu í sandinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tjáningafrelsið

Þetta er frjálsræðið og tjáningafrelsið á íslandi......en saqmkvæmt stjórnarskránni máttu gera þetta það er að mótmæla á friðsaman hátt en ef þú mótmælir einhverju þá ertu handtekinn af lögreglunni og svo stendur þú í rándýrum dómsmálum á eftir til að reyna að fá réttlætinu framfylgt sem í flestum tilfellum er ekki til.

Ekki nema von að fólk sé spennt fyrir nýrri stjórnarskrá....það er orðið svo leiðinlegt að brjóta ákvæði í þeirri gömlu.


mbl.is Lalli sjúkraliði fær ekki bætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Plottið á bak við tjöldin

Þeir vísa hver á annan og enginn vil kannast við neitt eða axla ábyrgð.............ofboðslega eitthvað íslenskt.

Og lögregla vígvopnast á bakvið tjöldin og enginn veit neitt fyrr en fyrsta fórnalambið fellur og þá munu þeir styðja hvorn annann og allt fellur í ljúfan farveg,enginn veit neitt og enginn sekur um neitt.

Hún er ofsalega sterk þessi séríslenska ábyrgðartilfinning svo ekki sé meira sagt.


mbl.is Sjónum næst beint að Gunnari Braga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru þau ekki vön því?

Mér sýnist nú Norðurlöndin vera orðin vön því að taka við landanum. Nú streymir hann sem aldrei fyrr full hraustur til Norðurlandanna í von um betra líf og afhverju þá ekki líka með e-bólu?
mbl.is Norðurlöndin taki við Íslendingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brottfall úr skólum

Reglulega skýtur upp kollinum sú umræða hér á landi að mikið brottfall sé af nemendum úr skólum . Hér er kannski eins skýringin á því hvers vegna nemendur klára ekki skólagönguna og taka ekki próf....þeir eru einfaldlega reknir úr skæólunum?
mbl.is 16 nemendur reknir vegna drykkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ömurlegt

Hreint út sagt ömurlegt að vita til þess að íslenska lögreglan muni nú vopnast hríðskotabyssum til notkunar á borgarana.

Þarna féll álitið á landinu um mörg sæti Þó fallið hafi að vísu ekki verið hátt.

 


mbl.is Byssurnar ekki komnar í bílana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband