Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2015

Ömurlegt og lélegt sjónvarpsefni

Þetta er með því ömulegasta og lélegasta sjónvarpsefni sem fólki er boðið upp á og er þá mikið sagt.

Niðurlæging fólksins sem lætur svo hafa sig út í þetta er algjör og mættu þjálfarar og aðstandendur þáttanna hafa það í huga.


mbl.is „Við erum öll orðin feit á ný“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er ekki rétt og bíður hættum heim

Það er ekki rétt að fara svona að hlutunum barnanna vegna og þegar einstaklingur er kannski farinn að eiga tugi hálfsyskyna víða um heim þá bíður þetta hættunni heim og getur orsakað óbætanlæegt slys síðar meir vegna skildleika og fl.

Að gera þetta svo órekjanlegt eða svokallaðan lokaðan sæðigjafa er sjálfselska af móðurinni.


mbl.is Þekkir 24 hálfsystkini sonarins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversu heimsk getur mannskepnan verið?

Það er með eindæmum stundum hversu heimsk mannskepnan er en samt lifað.

Umskurður kvenna og karla vegna siða,venju og trúar árið 2015 er alveg með eindæmum og eins og fram kemur í meðfylgjandi grein að um 97% giftra kvenna í Egiptalandi skuli vera umskornar er albeg með ólíkindum.

Í hvað trúarbók stendur að fólk skuli vera umskorið?

Það er með ólíkindum hvað fáfræði og heimska skuli vera langlíf hjá sumum þjóðfélögum.


mbl.is Í fangelsi fyrir að limlesta kynfæri stúlku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott dæmi um hversu sjúkt þetta er orðið.

Þetta er enn eitt gott dæmi af mörgum sem sýnir okkur hversu sjúk þessi símahegðun er orðin á stórum hluta af fólki í dag. Enginn getur farið eða gert neitt nema hafa símann með og fólk er á spjallrásum,leitar á internetinu,á facebook þar sem það á ekki lengur neitt líf og takandi myndir af öllu og engu en þó helst af sjálfu sér og sendir svo um allan heim.

Þetta fólk er akandi bílum og hangandi í símanum í akstri,étandi undir stýri,drekkandi gos eða kaffi og fleira sem þessu fylgir og er orði hættulegt sjálfu sér og öðrum. Maður hefur meira að segja séð konur mála sig undir stýri á akstri og svo nær þetta fólk ekki beygjum,getur ekki langt í stæði eða stoppar ekki á rauðu ljósi.

Þessi símanotkun og hegðun er löngu orðin sjúkleg.


mbl.is Tók upp símann í miðjum leik - myndband
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað eyðileggur reglugerðar farganið fyrir okkur.

Það kemur alltaf betur og betur í ljós að reglugerðar farganið sem hér er og er alltaf verið að bæta við samkvæmt ESB og ES er farið að skemma fyrir þjóðinni. Þetta heftir nýsköpun,kemur í veg fyrir að önnur fyrirtæki komi hingað og hefur þar með mikil áhrif á samkeppnisstöðuna hér á landi neytendum til bölvunar.Þegar reglugerðar farganið er farið að hafa þessi áhrif þá vinnur þa ðekki lengur með neytendum heldur gegn þeim. Það er spurning hvort við ættum ekki að segja okkur úr ESB um leið og umsóknin til ES verður dregin til baka og þá taka Schengen með í leiðinni?


mbl.is Reglur um merkingar stoppuðu Costco
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fylkjum liði öll saman.

Kannski þetta séu tíðindin sem munu hleypa öllu upp í íslensku þjóðfélagi eins og Völvan spáði fyrir um vegna ársins 2015?

Hver veit!

En þetta þarf að rannsaka ofan í kjölin og almenningur þarf að fylkja sér að baki Víglundar Þorsteinssonar því hann virðist einn hafa áhuga á að grafast fyrir um þetta og koma hlutunum upp á yfirborðið.

En sé þetta rétt þá þurfa bæði Jóhanna Sig. og Steingrímur J. að svara til saka og upplýsa þjóðina hvað þeim gekk til með þessu öllu.

Hefði ég eða þú gert þetta værum við örugglega sakaðir/sökuð um landráð og jú ef þetta er rétt þá eru þetta hrein landráð. Að plotta svona,ljúga og fela fyrir sinni eigin þjóð og koma mörg hundruð milljörðum á bakið á henni eru ekkert annað en landráð og á að dæma eftir slíku.Með þessum gjörningi missti margt fólk allt sitt og húsnæðið líka.

Þúsundir gáfust upp og fluttu til annarra landa og sér ekki fyrir endann á því ennþá því enn eru áhrifa af hruninu að koma fram hjá fólki og fólk sem gat þraukað er búið ða gefast upp núna.

Það var ekki nóg að það átti að troða Icesafe reikningunum ofan í kokið á þjóðinni heldur er plottað gegn henni vegna bankanna og hrægammasjóða líka.

Það er löngu kominn tími til að fríska uppá og dusta rikið af "Helvítis fokking fokk" skiltunum og mæta niður á Austurvöll......við eigum ekki að láta bjóða okkur uppá þetta sukk,spillingu,viðbjóð og lýgi lengur.


mbl.is Stórfelld svik og blekkingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við erum þakklát.........

Staða heimilanna er núna í byrjun árs eins ogh hún var árið 2007 fyrir bankahrunið.

Þetta getur þjóðin verið þakklát fyrir...þakklát bönkunum,þakklát mörgum stjórnvöldum í gegnum tíðina,þakklát fyrir sukkið,þakklát fyrir spillinguna og óráðsíuna til langs tíma.

Og ekki síst þakklát Jóhönnu Sig. og Steimngrími j. fyrir að selja veiðileifi á sína eigin þjóð til hrægammasjóða,erlendra eigenda bankanna og fleiri.

Allt þetta fólk er og var hátt launað með allskonar fríðindi og bitlinga í skjóli ábygðar ef að var spurt.

Við sjáum svo hvar ábyrgðin var þegar upp er staðið.

J´+u þj´+oðin má drjúpa höfði og vera Þakklát fyrir að eiga svona góða að.


mbl.is Staða heimilanna líkt og fyrir hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er maðal annars ein af ástæðunum......

Þetta er meðal annars ein af ástæðunum afhverju heimurinn sem við búum við í dag er eins og hann er. Hundruðir milljóna manna þarf að lifa við að svona vitleysingjar fara með völdin,ráði og stjórni og heimsbyggðin líður fyrir það.


mbl.is Vitnaði í biblíuna gegn loftslagsbreytingum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meðal annars þess vegna.

Það er meðal annars þess vegna sem mikill fjöldi fólks vill að RUV verði selt enda á ríkið ekki að standa í útvarps og sjónvarpsrekstri í samkeppni við einkaaðila.

Að stj´+orn þessa fyrritækis skuli vera kosinn á alþingi og af þingmönnum orsakar það einmitt að maður tresytir þessu ekki og vill þetta ekki.

Allsstaðar þar sem pólitík kermur inní þar er plott,spilling og leiðindi í gangi.

Breytið þessu fyrirkomulagi svo fólk fari í það minnsta ða hafa trú á þessu en helst af öllu seljið RUV.


mbl.is Heitar umræður um stjórn RÚV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski ekki nema von ?

Húðin er stærsta líffærið,er lifandi og þarf jú að anda.

Hvernig skildi andlitshúð kvenna ganga með öndun þegar búið er að klína allri þessai krem,púður drullu á hana og loka öllu sem hægt er að loka má segja það er svitaholum og fleiru sme á og í húðinni er og á að vera?

Er kannski ekki nema von að konur skuli teja sig þurfa hrukkukrem og allskonar óþarfa þegar á líður ef þær fara svona með húðina áratugum saman á unga aldri..

En þetta er gott fyrir snyrtivöruiðnaðinn svo sem enda tekur hann hundruði milljarða á ári hverju í bráðnauðsynlegan óþarfa og eins og rannsóknir og kannanir sýna þá gerir stærstu hlutinn af þessu drullumalli ekkert gagn nema síður sé.


mbl.is Undirbúningur flugfreyjunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband