"dýr og vandræðaleg vitleysa"

Eitt af mörgu sem okkur mannfólkinu hefur tekist að koma á og skemma með vitleysu og öfgum eru brúðkaup......þetta höfum við að vísu gert líka með skýrnir,fermingar,afmæli og erfidrykkjur(andlat) enda eru þessir viðburðir í lífi einstaklinganna löngu dottnir yfir og út um hver tilgangurinn er með þeim heldur orðnir peningaplokk sem aðrir maka krókinn á......og gera það gott.

Og brúðhjón sem svo gera það opinbert að þau eru móðguð yfir hversu gjöfin er ódýr og eða léleg segir nú bara meira um þessi nýgiftu hjón en nokkur orð.Það er kannski komið á sérstak"limit"þegar gefnar eru gjafir um það hvað þær megi kosta?

Hvenær tíðkast það að minnast á það við gestina hversu mikið veislan kostaði pr.mann? Og hver bað um það að verða boðin í veisluna? Er ekki hægt  sig án þess að láta svona og kosta öllu þessu til.......gengur ekki brúðkaupið(giftingin) útá það að vikomendur eru að játa og staðfesta ást sína en ekki hvernig veisla á að vera og hve mikið hún kostar eða er brúðkaupið verðlagt í dag eftir því hve mikið veislan kostar......því meiri kostnaður,því meiri og sterkari ást?????????

Það kannski verði komið næst og þætti vel við hæfi að þegar maður  labbar út úr veislu hvort sem maður er í skýrn,fermingu,afmæli,jarðaför og erfidrykkja eða brúðkaupi að maður fá afhentan gíróseðil við útidyrnar?


mbl.is „Ódýr og vandræðaleg“ brúðkaupsgjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband