Margir tilbúnir að láta gera.....

já það er sérkennilegt hversu margir eru tilbúnir að láta gera lítið úr sér opinberlega samborið hve margir gefa kost á sér í þessa svokölluðu ömurlegu veruleikaþætti.Þættir þessir eru víst eitt vinsælasta sjónvarpsefnið í dag og sýnir lágkúruna á lægsta plani í allri sinni mynd og eiga upprunqa sinn í US nema hvað.

Að gefa svo kost á sér sjálfviljugur í svona sýnir held ég andlega brotinn einstakling enda er stöðugt verið að etja fólki saman í allskonar keppnum í þessum þáttum,gera lítið úr því og kalla það hinum og þessum nöfnum (til að fegra þetta eru það kölluð hvatningarorð) Orðið "biggest looser" segir bara allt um þetta og hefur hingað til ekki þótt skemmtilegur titill til að bera að vera stærsti auminginn.Fólk hlýtur að geta snúið við blaðinu og breytt um lifsstíl án þess að láta gera lítið úr sér opinberlega og það í sjónvarpi.

 


mbl.is Metþátttaka í Biggest Loser
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ViceRoy

Já ekki heyrði ég góða hluti um "Masterchef Iceland"... heyrði þetta hefði verið hörmung, þót Áströlsku og upprunalegu þættirnir séu hins vegar hið fínasta efni, meðan hið ameríska er RUSL!.

En ég geri mér grein fyrir að þetta hafi getað verið kaldhæðni hjá þér... þessir þættir heita "Biggest Loser" ekki "Biggest Looser"...  :P

ViceRoy, 29.6.2013 kl. 01:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband