Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2014

já drekkiði skít!

Í orðsins fyllstu merkingu þá eða hvað? Hvalamjölið sem notað er í bjórinn er búið meðal annars  til úr innyflum,þörmum og þarmainnihaldi hvalsins.............það var og! Og úr þessu verður hinn besti mjöður að sagt er.

Skellið ykkur á þorrablót,fáið ykkur þorramat og drekkiði hvalaskít með þessu.

Flokkast undir hvalaveigar.


mbl.is Þarmainnihald í hvalbjórnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afhverju er þetta svona?

Að fólk með veik börn skuli þurfa að standa í svona veseni við kerfið getur varla talist eðlilegt. Ekki er þetta velferðarkefið sem hér á að vera? Er það kannski að virka svona? Er nú eki kominn tími á að fara ofan í saumana á reglugerðarfarganinu sem hér er um allt og alla,minnka það og gera þetta manneskjulegra? Gera kerfið fyrir fólkið sem býr í landinu og þarf að nota þetta.
mbl.is „Ekki hjá okkur, heldur hjá hinum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtilegt fyrir starfsfólk Icelandair.

Alltaf gaman að lesa svona sögur,sögur sem skipta kannski ekki öllu máli en jú eru samt kannski mikilvægar eins og fyrir þess 13 ára stúlku.

Fallegt þakkar  bréf og  gaman að maðurinn skildi gefa sér tíma til a' skrifa það og þakka fyrir.


mbl.is Fundu síma dóttur Pauls Guilfoyle
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ábyrgðarlaust lið á ofurlaunum.

Enn eitt gott dæmi hvernig komið er fram við fólk og fyrirtæki á þessu landi og opinberiri starfsmenn starfa í skjóli reglna og laga sem virðast til þess eins gerð og sett okkur hinum til höfuðs.Manni finnst stundum eins og ríkið sé í stríði við þegnana eða sé að reyna að klekkja á þeim sem mest.

Og strfsmennirnir sem virðast vera gull tryggði koma fram eftir þessum lögum opg reglugerðum og ekkert er hugsað um hvaða áhrif þetta hefur,hvorki á eigendur eða starfsmenn. Svo þegar vinnudagi líkur eins og kemur freram í þessari grein fara hinir opinberu starfsmenn heim með tóman haus en viðkomandi einstaklingur eða fyrirtæki/eigandi þess veltast áfram í hugarangri og áhyggjum. Svo tekur þetta mörg ár og alltaf er fólk í bið,bíður eftir svörum,bíður eftir útkominni,bíður og bíður og ekkert gerist fyrr en seint og um síðir. Hvenær skildi fólk í opinbera geiranum,framkvæmdastjórar, deildarstjórar,skrifstofustjórar,þingmenn,ráðherra og margir fleiri sem fara með völd axla ábyrgð á gerðum sínum í  þessu landi?


mbl.is „Tekur þessu sem árás á fjölskylduna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eyðsla á almannafé.

Þeir ættu að kvarta meira um niðurskurð og vöntun á fé til ýmissa hluta í HÍ og fara svo svona með það fé sem þeir hafa yfir að ráða. Einhvers staðar hefði einhver axlað ábyrgð á svona frumhalupi og mistökum og tekið pokan sinn en það er borin von að svo verði á Íslandi.
mbl.is Greiða Jóni Baldvini hálfa milljón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einokun á sem flestum sviðum.

Ágætt hjá þeim að hafa bara einokun á sem flestum sviðum enda auðvelt þar sem landið er eyja og því hægt að einangra það ef vill. Við hefðum svo átt að bauna meira á Danina í gegnum tíðina fyrir það hvernig þeir komu fram við okkur þegar þeir réðu hér ríkjum. Sterkir straumar í þjhóðfélaginu eru ða gera alveg nákvæmlega það sama árið 2014.
mbl.is Ameríkuflug WOW air í uppnám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bananalýðveldi.

Gott dæmi um ástandið hér. Maður hefði satt að segja haldið að svona lagað væri ekki til árið 2014  í ríki sem vill kalla sig réttarríki. Að öll aðkoma að þessu annars fáránlega máli skuli vera á hendi sama manns. Minnir þetta ekki óþægilega á sýslumannsmámlið á Akureyri og dýrustu sekt fyrir umferðalagabrot á Íslandi á sínum tíma?
mbl.is Sá skikkjuklæddi „undir, yfir og allt um kring“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alltaf var logið að þjóðinni....

Ágæt lesning þó að viðurkenningin komi ansi seint en alltaf þegar þetta kom upp í fjölmiðlum um að samstarfið væri orðið styrt eða erfitt þá þrættu bæði Jóhanna og Steingrímiur fyrir það eins og þau mögulega gátu. Alltaf var verið að ljúga að þjóðinni.
mbl.is Næg tilefni til að slíta samstarfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virkilega dapurt.

Að rúmlega 1000 manns skuli njóta svona hlunninda á kostanað almennings í landinu er sorglegt,virkilega dapurt en sýnir okkur bara hvernig þetta þjóðfélag er orðið og hvernig búið er að fara með það. Spillingar og eiginhagsmunapot í forgangi hvert sem litið er.

Virkilega dapurt.


mbl.is Rúmlega þúsund æviráðnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósjálfbjarga blóðsugur.

Þetta kóngalið sem og breski aðalinn eins og hann var eru og voru má segja þjóðarmein og blóðsugur á þjóðfélaginu. Þetta lið gat ekki gert neitt hjálparlaust að því er virðist. það gat hvorki klætt sig,háttað sig,eldað,þrifið,þvegið eða gert nokkurn skapaðan hlut. Það ól ekki einu sinn upp börnin sín heldur gerðu fóstrur það. Þetta skemmti sér,hneikslaðist og var að drepast úr fáfræði,fordómum og snobbi. Spurning um hvort það gat baðað sig hjálparlaust sem ég efa en það gat borðað eftir að búið vara að skammta því matinn á diskana en hverni fór það að því að fjölga sér.....var "honum " stýrt á réttan stað kannskli?
mbl.is Hver fær að láta renna í drottningarbaðið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband