Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2014

Græðgi í sinni verstu mynd.

Það er gott að eiga lausa íbúð í Eyjum núna eða íbúð sem getur verið laus yfir Verslunarmannahelgina miðað við fréttaflutning af leiguverðinu. Að nokkur heilvita maður skuli geta boðið öðrum svona leigu kinnroðalaust segir bara allt sem segja Þarf um viðkomandi og fólk á ekki að láta bjóða sér svona lagað. Ég færi frekar eitthvað annað í útileigu en í til Eyja uppá svona bítti enda spáir hvort eð er bæði roki og rigningu þar um helgina og fátt ógeðfeldara en þannig veður til að vera í útileigu....nema kannski okur leiguverð.
mbl.is Hundruð þúsunda fyrir íbúð í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvenær verða þessir menn dæmdir......

Hvenær skildi renna upp sá dagur að þessir árásarmenn verða dæmdir fyrir tilraun til manndráps en ekki fyrir líkamlega árás eða annað? Að veitast svona tveir eða fleiri að einni manneskju og ítrekað kýla viðkomandi þar sem hann liggur óvígur,sparka í höfuð fólks eins og við lesum um hvað eftir annað í fjölmiðlum,nota hnúajárn,hnífa,axir,sleggju,kylfur og fl.vopn hvað er þetta annað en tilraun til mannsdráps sem í flestum tilfellum sem betur fer mistekst? Það á að dæma þessa vitleysingja því jú það eru vitleysingjar sem haga sér svona, hart og dæma þá fyrir alvarlega tilraun til manndráps af yfirlögðu ráði og ef fórnarlambið deyr eins og hefur gerst þá að dæma þá fyrir morð af yfirlögðu ráði og enga miskunn.Þetta lið þarf að fara af götunum enda stórhættulegt almenningi og sér sjálfu.
mbl.is Settist klofvega yfir óvígan og kýldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brjálaður og í vígahug

Já það er ekki gott að vera brjálaður,í vígahug og heita Vígmundur. Og að láta hanaagal taka sig af taugum þá er nú illa komið fyrir fólki. hvað með hundagelt,bílaniðinn og bílflauturnar? Allan almennan hávaða og nið sem fylgir nýtímasamfélagi....fer þetta ekkert í taugarnar á fólki? Haninn jú galar við og við yfir daginn,misjafnt eftir einstaklingum hversu mikið og oft en haninn er þagnaður um eða uppúr kl 18 síðdegis og byrjar ekki aftur fyrr en kl 3-3.30 á næturnar. Ef kofinn er vel einangraður og lúga eða dyr ekki opnaðar fyrr en um eða eftir kl 9 á morgnana þá eru flestir ef ekki allir farnir í vinnu og eða skóla og haninn ætti ekki ð ónáða neinn en það er jú líka hægt að láta allt fara í taugarnar á sér.......lika hanagal.
mbl.is Hanagal í Mosfellsbæ truflar íbúa á svæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi hittir sumarið 2015 á .............

Ég ætla rétt að vona sunnlendinga vegna að næsta sumar það er sumarið 2015 hitti á helgi í það minnsta..............það væri leiðinlegt ef það yrði á virkum degi.
mbl.is Sólarvon á sunnudaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áframhaldandi bull og öfgar vegna reykinga.

KOm manni svo sem ekkert á óvart bullið varðandi reykingar hér á landi sem og öfgarnir sem viðgangast vegna þeirra um allt þjóðfélag. Réttindi fólks til að vera í reyklausu samfélagi en réttindi þeirra sem reykja eru engin.Fólk hýmir hingað og þangað við þessa iðju sína eins og fram kemur í greininni og er litið hornauga þar sem það er. Þríðja flokk þjóðfélagsþegnar eða úrhrök. Og hinir sem ekki reykja heimta hreint loft fyrir sig...........hvað um verksmiðjurnar sem spúa eitrinu frá sér,álverin og svo ekki sé minnst á bílana? Eða ýmislegt í matvælum sem fólk er að láta ofan í sig og er heilsuspillandi svo ekki sé nú minnst á allan óþverrann sem fer ít í loftið hjá hinum stóru iðnríkjum víða um heim. Hvort ætli sé meira heilsuspillandi?
mbl.is Reykingar óbærilegar nágrönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótvíræð merki um innbrot....

Það á að setja það í lög yfir tryggingavernd og tryggingar að ef lögregluskýrslan segir að þetta hafi verið innbrot þá eigi að borga viðkomandi út bætur.

Tryggingafélögin eiga ekki að stjórna því eða ráða hvort fólk fái tjón sitt bætt eða ekkki ef lögreglan segir í skýrslu að þetta sé ótvírætt. Það er jú lögreglan sem rannsakar málið og kemst að niðurstöðú en ekki tryggingafélögin.


mbl.is Hvenær eru ummerkin ótvíræð?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hann er líka farinn.

Hvað skildu margir vera eftir í flokknum?
mbl.is Segir sig úr Framsóknarflokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjúk samfélög

og sjúkt fólk sem hefur ekkert þarfara að gera en að fylgjast með eins og í kvikmyndahúsi þegar sprengjum er varpað á hvort annað............þaðp er varla hægt að verða sjúkari en þetta.
mbl.is Horfa á sprengingar og borða popp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lokað land

Þetta er nú allt frjálsræðið hér árið 2014.Það verður nú seint sagt að Ísland sé opið og frjálst land en minnir frekar á haftalönd eins og Kína og fleiri.
mbl.is Ný skýrsla lokar á kaup Nubo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Segir meira um þá

Mér finnst það nú  segja meira um þá sem sjá brjóst,pung eða getnaðarlim út úr þessu logoi en um  logoið sjálft.

Ekki sá ég neitt eða datt í hug neitt af þessu þrennu þegar ég skoðaði þetta logo fyrst......og get ekki séð neitt í því enn sem minnir mig á þetta þrennt það er brjóst,pung eða getnaðarlim. Sennilega bara kynsveltir eða einstaklingar með kynlíf eða líkamsparta á heilanum og sjá þá alls staðar.


mbl.is Nýja lógóið varð óvart óviðeigandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband