Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
6.12.2015 | 20:40
Ekki þó mér væri borgað fyrir það....
Er blessunarlega laus við innilokunarkennd,lofthræðslu,flæughræslu og allt slíkt en að fara að leigja m´æer hylki til að sofa í,hylki sem er 1x1 metri og 2 m á lengd.........nei takk.....færi ekki í þetta þó mér væri borgað fyrir það.
Svefnhylki komin á hótelmarkaðinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.12.2015 | 16:00
Hin VIRKA Íslenska samkeppni í hnotskurn
Alveg dæmigert fyrir Ísland og Íslenskan markað.......samkeppni að nafninu til og almenningur greiðir okur gjöld og vexti.
Nei það er sko ekki virk samkeppni á neinu hér á landi og hefur ekki verið.
Eini tilboðsgjafinn bauð 0,65% afslátt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.11.2015 | 11:47
Dómstólarnir ófærir um að vinna sína vinnu en ...
En þau eru fær um það...dómstóll götunnar virðist vilja taka yfir,ráða því og stjórna hvernig dæmt er í sumum eða öllum brotamálum hér á landi vegna þess að þau ertu ósátt við fallna dóma.
Svo ef ég er ekki sáttur við einhvern dóm þá tek ég bara málið í mínar hendir eða hvað?
Það er bjart framundan í Íslensku samfélagi.
Lögin eru ekki vandamálið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.11.2015 | 09:34
Það sé dautt og fleiri komi á eftir
Það er hreinsun að því að elta þetta drasl uppi og aflífa það. Við höfum þá kannski aðeins betri heim á eftir.
Jihadi John var skotmarkið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.11.2015 | 18:35
Sumir karlmenn í sálarkreppu vegna...
minnimáttarkenndar og skorts á eigin ágæti.
Það kemur skýrt fram í lögbroti þessa fyrirtækis sem auglýsti eftir konum til starfa vegna þess meðal annars að konur hafi "aðra" sýn á hlutina en karlar.
Skildi þetta vera skortur á eign ágæti,sjálfsvirðingu og sjálfsálit en eingöngu undilægjuháttur vegna kvenna?
Vilja bara konu í starfið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.11.2015 | 18:29
Svo mikið af veiku fólki þarna úti sem er ......
hættulegt sjálfu sér og öðrum.
Svona skrif segja allt um viðkomandi og þarf ekki að bæta neinu við.
En það þarf að stoppa þessa stjórnlausu múgsefjun og dómstól götunnar í eitt skipti fyrir öll.Það er ekki eðlilegt eða heilbrigt hvernig sumt fólk er farið að láta á þessum net miðlumog hvað þetta fólk lætur út úr sér.
Láta það axla og bera ábyrgð á því sem það gerir eog segir eins og það vill að hinir "seku" geri.
Og þetta fólk stuðlar að því að einn daginn verða sett skilyrði og ströng höft á þessa miðla ef þeim verður einfaldlega ekki bara lokað.
þu munt missa útlimi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.11.2015 | 11:31
Fréttablaðið ekki trúverðugur miðill eftir þetta
Ekki finnst mér fréttablaðið trúverðugur miðill eftir þetta og þarna drullaði það svo sannarlega upp á bak og málaði sig út í horn.
Svona æsifréttamennska,uppsettning og bull minnti á dauðadóm yfir DV hér um árið.
Og dómstóll götunnar sem fylgdi á eftir ´tti að' skammast sín en kann það greinilega ekki.
Hvernig finndist þessu fólki sem stóð í þessum mótmælum,mynd og nafnabirtingum af grunuðum ef allir létu svona útaf öllu sem uppá kemur í þessu þjóðfélagi? Múgæsing,eggjakast,mótmæli og fl.er þessu fólki til vansa en ekki framdráttar og hafi það allt skömm fyrir hrgðunina. Fólk getur ekki látið svona bara vegna þess að hlutirnir eru ekki eins og það vill að þeir séu heldur þurfa málin að fara í sinn farveg og lögreglan þarf að fá frið til að vinna í málinu eða bjóst þetta fólk virkilega við því að það færi full mannaður bíll frá lögreglustöðinni vegna þessara mótmæla heim til þessara grunuð manna og setti þá í gæsluvarðhald? Er þetta lið svoan vitlaust?
Og varðandi uppsettningu á ekki frétt Fréttablaðsins.............íbúð sérútbúin til nauðgana......er ekki allt í lagi þarna niðurfrá? hvað skildu margir mótmælendur eiga svona leikföng og tól? Handjárn,svipur og fl.í léttan bdsm leik sem krydd í kynlífið því við vitum vel að amrgir hafa áhuga og skemmtun af slíku.
Þetta hafa kannski allt verið upprennandi nauðgarar í heimaþjálfun eða hvað?
Það er sem sagt framtíðarsýn þessara uppalenda sem mættu og mótmæltu í gær að best sé að haga sér svona í hvert skipti sem okkur mislíkar,misbýður eða við erum ósátt við eitthvað í þjóðfélaginu....þá bara mæta.halda ræðu.púa og grýta eggjum og einhverju öðru.
Mun reyna á ábyrgð Fréttablaðsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.11.2015 | 18:25
Lélegt að skyggja á Airwaves
Héldu þennan blaðamannafund sinn á miðri Airwaves hátíð til að ná örugglega athygli og vekja eftirtekt.
Finnst það lélegt að skyggja á aðra atburði bara til þess eins að ná sjálfur athygli og sínu fram. Svona framkoma og vinnubrögð hafa verið kennd við siðblindu hingað til.
Þjóðgarður á miðju hálendinu þar sem ekkert er nema sandur urð og grjót og brota brot af fólkinu fer.
Findist nær að leggja veg þarna yfir frá suðurlandi á norðurlandið og frá vesturlandi til austurs svo leiðir styttist og fólkið geti notði þess að fara þarna yfir fyrir utan að spara þjóðinni milljarða í fluttningsgjöld í gegnum tíðina.
Og þessi gríma er ljót og hallærisleg....Björk hefði verið nær að koma bara fram eins og hún er en ekki setja upp þessa ljótu grímu..........hvað var hún að fela?
Maðurinn á bak við grímu Bjarkar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.10.2015 | 13:02
Hún gæti leitað til hjálparstofnanna
Ef svo fer sem horfir.illa fyrir Birnu Einarsdóttur þá höfum við alltaf Mæðrastyrksnefnd,Fjölskylduhjálpina,Rauða krossinn og Hjálparstofnun kirkjunnar.
Og ef allt þrútyr þá má kannski athuga með að halda styrktartónleika fyrir hana því við verðum líka að hugsa um okkar fólk en ekki bara erlenda flóttamenn.
Laun Birnu gætu lækkað um helming | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.10.2015 | 20:18
Og þykir þetta vera frétt?
Aldrei þarf ég að taka til heikma hjá mér og hef aldrei gert og ekki hafa fjölmiðlar séð ástæðu til þess að ræða það neitt við mig eða fjalla um það á annan hátt.
Enda telst það varla til frétta hvort fólk tekur til heimahjá sér eða ekki því það varðar bara engan um það og ég er viss um að það langar heldur engan til að vita það.
Ef fólk er bara skipulagt þannig að hver hlutur á sinn stað og hluturinn er settur á sinn stað eftir notkun svo hann sé aðgengilegur næst þegar þarf að nota hann, þá þarf ekkert að taka til.....aðeins að þrífa.
Ekkert flókið og varla fréttnæmt.
Nánast hætt að taka til heima hjá sér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |