Svarti listinn.

Þessi svarti listi er nú alveg fáránlegur svo ekki sé meira sagt en hverjum datt nú svo sem í hug að Landsvirkjun,Landsbankinn,Arionbanki,Orkuveita Reykjavíkur,Síminn og Íslandspóstur myndu hlusta á þetta,taka þátt í átakinu og lækka verð? Hefði nú frekar haft trú á að hin 6 fyrirtæki myndi fara eftir þessu og hætta vði hækkanir en ekki þessi fyrstu sex.
mbl.is Tólf fyrirtæki á svörtum lista ASÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú riða Bandaríkin til falls......

Ja hérna,þvílík ósvífni að skapa og stefna þjóðfélaginu í þessa hættu með því að sýna skapahár kvenna á gínunum í verslunarglugga. Það færi svo endalega með þjóðfélagið ef brjóstin yrðu sýnd líka því það er eitthvað sem er alveg BANNAÐ í Bandaríkjunum.....spurning afhverju þeir hafa ekki bannað konum yfir höfuð að hafa brjóst.
mbl.is Gínurnar sýna skapahárin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott mál og þarft en .....

Afhverju var þetta þá ekki gert fyrr í Kopavoginum og afhverju hafa fleiri sveitafélög ekki fylgt þessu eftir ef þetta er hægt.

Varla hefur fólki í Kópavogi(og annarsstaðar) sem er í þörf fyrir félagslegt húsnæði fjölgað svona bara á árinu 2013 eða hvað? Eru þessir flokkar ekki búnir að vera í bæjarstjórninni frá síðustu kosningum eða í bráðum 4 ár? Er ekki svolítil kosningalykt af þessu máli enda er þetta ekki einu sinni á fjárlögum bæjarins fyrir árið 2014 skilst manni á fréttum. Er þetta ekki bara víxill sem ekki er innistæða fyrir og dettur út eftir kosningar í vor?


mbl.is „Verið að bregðast við neyðarástandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aldrei að treysta því.

Nei betra að flytja úr landi...sérstakt og við með þetta frábæra VELFERÐARKERFI sem alltaf er verið að hampa og hæla sér af.....meira að segja til að koma því enn betur á framfæri var Félagsmálaráðuneytið lagt af og stofnað velferðaráðuneyti í staðinn.

Og velferðakefið sjálft er svo gott að það borgar sig ekki að treysta á það heldur flytja úr landi ef fólk þarf á aðstoð að halda.


mbl.is Mistök að treysta á kerfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eingetinn?

Ja hvað veit maður? Getur ekki allt gerst þegar trúin er annars vegar?
mbl.is Grunlaus nunna eignaðist son
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. janúar 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband