Ynnilega sammála,ekki af grimmd.

Nei þetta er alls ekki gert af grimmd vil ég trúa heldur af forneskjulegum hugsunarhætti,fáfræði,trú og heimsku.
mbl.is Umskurður ekki af grimmd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og þar fóru ódýrleg heitin út um gluggann

Ef flugmiðinn kostar um 20.000 kr með sköttum og 10.000 kr fyrir eina tösku fram og til baka síðan bætist við 4000 kr fyrir 5 kg handfarangur báðar leiðir þá er flugmiðinn kominn í 34.000 kr.og kemst fljótt íyfir 40.000 kr ef fólk er með aukafarangur/tösku. Þar fór ódýrasta flugfélagið út um gluggann.
mbl.is WOW rukkar fyrir handfarangur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flokkast það þá ekki undir mismunun?

Ef kona er skipuð í embætti bara af því hun er kona og að ráðherrann sem skipar í embættið telur það vera  miklivægara en að karl gegni því....hvað kallast það þá?

Er ekki verið að mismuna fólki þarna eftir kynjum og þá um leið að brjóta lög?


mbl.is Mikilvægt að kona gegni embættinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of mikil völd og vondur matur.

Ég er hættur að taka slátur!

Það sýnir enn og aftur að þessi matvælafyrirtæki hafa of mikil völd og stjórna því hvað við borðum eða getum verslað í matinn.

Nú eru sláturhúsin hætt að hreinsa vambirnar (ég trúi því að það sé ekki satt) því þau fá einfaldlega meira fyrir vambirnar með því að selja þær erlendis en að selja landanum þær með slátrinu. En þetta er ekki slátur úr þessum gevivömbum,það vantar allt bragð í þetta og manni dettur í hug vondur leir eða eitthvað álíka sem maður er að tyggja þegar þetta er smakkað. Slátur í gervivömbum kaupi ég aldei og mun ekki gera og  borða það ekki og nú hætti ég að taka slátur ef þetta verður svona að ekki sé hægt að fá vambir með slátrinu.

Slátur mun þá heyra til liðinnar tíðar.


mbl.is Ekki hægt að kaupa vambir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 6. október 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband