Vesalingar......

já þeir eru vesalingar og svíkja fólkið. Sjálfur sjálfstæðisflokkurinn hefur það af kjósendum að hafa sjálfstæðar skoðanir og fá að taka sjálfstæðar ákvarðanir eins og t.d. í þessu máli. Þessi nýja forista flokksins er samansafn af vesalingum og ekkert annað.
mbl.is Umsóknin verði dregin til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Litli ljóti andarunginn.....

það má segja að ljóti andarunginn hafi breyst í svan núna ef horft er á  nýju Hverfisgötuna í dag og þá gömlu eins og hún var. Einhvern veginn var það svo að þessi gata virtist alltaf verða útundan og var má segja orðið hálfgert "slömm" í miðbænum enda aldrei neinn þarna og ekkert virtist þrífast þarna. Þetta horfir vonandi til betri vega og mikilla breytinga núna eftir þessa andlitliftingu.......ljóti andarunginn breyttist í fallegan svan.
mbl.is „Með flottari götum í bænum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjum datt það í hug?

Hverjum datt það í hug að það yrði frítt í Hvalfjarðargöngin þegar lánin vegna framkvæmdanna á þeim yrðu upp greidd? Þið búið á Íslandi ef þið skilduð hafa gleymt því og þau gjöld og skattar sem sett eru á hér falla ekki niður,þau verða áfram um aldur og ævi og hækka frekar en hitt. Þetta eiga landsmenn að vita . Ég hef ALDREI búist við því eða gert mér vonir um það að það yrði nokkurn tímann frítt í Hvalfjarðargöngin þó svo að ríkið tæki við þeim eins og rætt hefur verið um og alls ekki ef svo yrði........ríkið myndi halda gjaldtökunni áfram til að fá meiri aura í hítina það er ríkissjóð. En það er gott að vera bjartsýnn:)
mbl.is Sýður á fólki út af Hvalfjarðargöngum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 21. febrúar 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband