Margt annað þarfara með peningana að gera

Það er margt annað mun þarfara með peningana að gera en að eyða þeim í kaup á heiðabýli langt upp á hálendinu.

Það er verið að hækka skatta á heimilin til að mynda VSK á matvæli,rafmagni,hita og fl.og þetta hefur í för með sér lakari afkomu heimilanna þar sem flest allt hækkar eins og flest allar nauðsynjar. Á sama tíma er verið að flytja tillögu á þingi um að kaupa Grímsstaði á fjöllum vegna þess að VG eru illa haldin af einhverri útlendinga grýlu. Ekki minnkar bullið þarna niðurfrá við Austurvöll svo ekki sé meira sagt.


mbl.is Vilja að ríkið kaupi Grímstaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bæta við og hækka verð.

Á sama tíma og þingmenn eru að karpa um hækkun VSK á matvæli og að afleiðing þess sé hækkun á matvæli í landinu sem er jú í sjálfu sér rétt þá á að koma með fleiri reglugerðir sem kosta framleiðendur meira og fer beint út í verðlagið eins og alltaf. Á endanum borgar neytandi í hærra vöruverði. SKítrur þetta ekki svolítið skökku við hjá þingmönnum að karpa um yfirvofandi hækkun á matvælum og í sama sinn stuðla ða hæhhkkun á marvælum? Hvernig á hin almenni neytandi að skilja þetta?

Það er komið í reglugerðir allkonar upplýsinga skilda á matvæli sem ekki er nokkur leið að skilja eða lesa og til hvers er þá verið að setja þessar reglugerðir á? Til þess eins að hækka vöruna því allt kostar þetta pening að prenta á umbúiðr þessar upplýsingar eins og reglugerðir segja til um.

Hefur einhver reynt og getað lesið allt sem stendur á mörgum tungumálum aftan á sælgætis umbúðum t.d.? Ef við tökum bara Mars eða Snickers sem dæmi......svo smátt letur að það er ekki nokkur leið að lesa þetta,ekki einu sinni með stækkunargleri og hver er þá tilgangurinn með þessum upplýsingum ef þær eru ólæsanlegar? Fyrir hverja eru þær þá? Sama má segja um letrið á mörgum marvælum sem fást hér í stórmörkuðum....ekki nokkur leið að lesa þetta þó mikið sé reynt.


mbl.is Vilja umferðarljós á matvæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að hafa heila þjóð að fíflum á alþjóðavettvangi

Núverandi stjórnvöld hafa engan rétt til að hafa þjóðina aðfíflum.Það ver ekki inní pakkanum þegar þau voru kosin til valda enda kom þa ðaldrei fram í kosningabaráttunni að umsóknin yrði dregin ti baka hlytu þau meirhluta kosningu.

Það var sótt um í nafni þjóðarinnar að henni forspurðri áínum tíma og úr því svo er komið á að hafa þetta bara inni óbreytt þó núverandi stjórnvöldum hugnist ekki að ganga í EU. Þessi stjórn verður ekki til eilifðar og það lítur ekki vel út fyrir þjóðina ef sótt er um,umsókn dregin til baka og svo sótt kannski um aftur. Þið hafið engan rétt á því að hafa þjóðina að fíflum á aðlþjóðavettvangi....nóg er nú samt.

Látið þetta bara kyrrt liggja eins og það er í dag.


mbl.is Stefnt að afturköllun umsóknarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 11. september 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband