Stendur UNICEF fyrir að setja rusl á strendur landsins?

Er ekki sérstakt að samtök eins og UNICEF standi fyrir atburði sem veldur mengun við strendur landsins og hvetji til slíks?

Verða þessir bangsar látnir liggja þarna áfram þar til þeir eyðast eða þeim skolar á haf út?

Hefur verið athugað hvaða efni eru í þessum böngsum eins og t.d. plast og önnur gerviefni sem eru óæskilega fyrri náttúruna?

Myndin af litla drengnum Aylan Kurdi var hroðaleg og snerti okkur öll en það hafa bara svo mörg hundruð og eða þúsundir barna fallið vegna þessa stríðsbrölts í því miður vel gefnum fullorðnum mönnum þar sem allt snýst um völd,peninga,græðgi,siðleysi og siðblindu og þessi gjörningur hvorki stoppar þetta brjálæði af né færi okkur börnin og alla saklausu borgarana sem hafa látið lífið í þessari geðveiki aftur.

Það hlýtur að vera hægt að standa að minningum um þetta fólk á annan hátt en svona.


mbl.is 400 bangsar við ströndina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki rétt,WOW hefur ekki sloppið.

Þetta er ekki rétt sett fram í þessari frétt að WOW hafi sloppið við umtal eða slæmt umtal því margir hafa og eru að einmitt að ræða þetta núna hvernig það gengur fyrirsig að kaupa flugmiða með þessu lággjaldaflugfélagi.

Og það verður WOW örugglega ekki til framdráttar að fá þennan mann til ´sin miðað við hvað hann er óvinsæll eftir dvölina hjá Spirit.

Ég er t.d. einn af þeim sem nenni ekki að standa í þessu og þegar upp er staðið munar ekki svo miklu á fargjaldinu enda sífellt verið að rukka inn fyrir eitthvað sem er innifalið í miðanum hjá öðrum.

Að rukka sér fyrir handfarangur og tösku eins og nú er gert.......common..hver fer í frí með kreditkortið og bara í því sem hann er klæddur?


mbl.is Óvinsæll forstjóri til WOW
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. mars 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband