I alvöru?..........þá er eitthvað mikið að hjá þjóðinni.

Ef það hefur áhrif á fólksfjöldan í IKEA að Eurovision er í kvöld þá er mikið sagt.........þegar hluti borgarbúa er meira að segja farinn að borða morgunmat og sunnudagsmatinn í IKEA þá hélt ég að ekkert myndi stoppa landann af að fara þangað....ekki einu sinni Eurovision.

En hvða um það............Áfram IKEA!

 


mbl.is Tómt í IKEA - Eurovision á Twitter
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta var löngu vitað en afhverju er ekki sjónum beint að framleiðendum?

Almenningur hefur ekkert val. Hann fer í verslun og kaupir inn til heimilisins og allt er í plasti,bökkum sem lokaðoir eru með plasti,hver sláturkeppur er pakkaður í plast,áleggsbréf eru oll í plasti,brauð,kex,kaffiog áfram mætti telja.

Hvers vegna er ekki tekið á þessu hjá framleiðendum sem neyða þetta plast drasl uppá neytendur eða getur verið að hið opinbera gerið það með stífum reglugerðum sem allt og alla eru að kæfa í nútíma þjóðfélagi?


mbl.is 10 kíló af plasti á 100 dögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vanstill fólk og langt frá veruleikanum

Það er með ólíkindum hvða eitt og eitt hanagal getur truflar marga og í raun sett fólk af límingunum. Þetta sama fólk er orðið svo veruleikafyrrt og komið svo  langt frá uppruna sínum og veruleikanum að það er spurning vort maður ætti að hafa áhyggjur.

Það eru ekki nema um tveir áratugir að það voru húsdýr í Reykjavík samanborið við litlu býlin í Laugadalnum,Lund í Fossvogi,hænsnahúsin við Nesti í Fossvogi og hænsnabúið sem var í dalnum þar sem íþróttasvæði Kópavogs er í dag.

Fólk býr í þéttbýli með allan hávaðann og ónæðið sem það veldur...........umferð allan sólarhringinn,sýrenur frá lögreglu,sjúkrabílum og slökkviliði,byggingaframkvæmdir og bara annar "hávaði" sem fylgir þéttbýlinu.

Kettir ónáða fólk,skíta inni eða í sandkassa barnanna,breyma um nætur og hundar skilja eftir sig stykki sín og gelta mismikið....sumior allan daginn þegar eigandinn er ekki heima.

En svo fer all af límingunum þegar heyrist eitt og eitt hanagal...........hvað er að?

Það er alveg hægt að láta allt fara í taugarnar á sér ef viljinn er til þess en það er líka spurning fyrir þá sem missa sig yfir hanagali hvort þeir ættu ekki ða skoða það vel og vandlega hvort það sé ekki eitthvað og meira að hjá þeim sjálfum en galinu frá einum og einum hana...........og leita sér aðstoðar hjá lækni vegna þess?


mbl.is Hanar útlægir af höfuðborgarsvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. maí 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband