9.5.2016 | 22:06
Þið eruð dónar..................
Hvernig margt fólk hefur komið fram á netmiðlum undanfarna daga varðandi forsetaframboð sitjandi forseta Ólafs Ragnars Grímsonar er til háborinnar skammar og sýnir manni glöggt að eitthvað hefur gleymst í uppeldi viðkomandi eða sá hinn sami hefur gleymt því sem honum var kennt þegar hann var ungur. Þetta á jafnt við marga karla sem og konur. Þið eru dónar og hafið sýnt það að þið eruð dónar. Hvað fólk hefur sagt og látið út úr sér og gefið í skyn er alveg hreint ömurlegt og argasti dónaskapur.
Það er engin viirðing borin lengur fyrir einu eða neinu hér í dag,hvorki fólki eða eigum þess og engin virðing fyrir sitjandi forseta eða embættinu sjálfu.
Ætlið þið ða láta svona við næsta forseta?
Þið létuð ekki svona þegar Vigdís var við völd....hvers vegna ekki?
Voruð þið enn minnug á það sem ykkur var kennt í uppeldinu en gleymduð því svo?
Já þið hafið sýnt það að þið eruð dónar.
![]() |
Ólafur Ragnar hættur við framboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |