4.5.2013 | 00:02
Spurning hversu langan frið.......................
Fólki er auðvitað farið að leiðast að ekki komi til ný stjórn sem fari að vinna í og taka á málunum sem síðast stjórn gerði ekki.Málunum sem hvíla þyngst á þjóðinni og það eru örugglega ekki friðun á hinum og þessum svæðum,innganga í ESB eða fiskveiðistjórnunarkefið og ný stjórnarskrá.Fólk sem er án vinnu,fópkk sem hefur eða er að missa allt sitt hefur allt önnur mál í forgangi.Fólk sem er komið í vanskil þolir ekki langa bið og klukkan tifar.
En varðandi leikina á alþingi hvort sem það er síðastaleikur,fallin spíta,brennó eða aðrir leikir þá er nú þjóðin orðin nokkuð vön því að hlusta á slikt og horfa uppá það frá þessum stærsta "leikvelli" þjóðarinnar við Austurvöll svo hún lætur sér kannski ekki bregða svo mikið þó Sigmundur fari í einn "klukk" leik í viðbót svona áður en hann skapar starfhæfa stjórn.Bara að það taki ekki of langan tíma.
Vill að Sigmundur fái frið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.