5.9.2013 | 18:01
Ég verð aldrei aftur eins.......
Það er búið að eyðileggja líf mitt með þessum sora og ég bíð þess sennilega aldrei bætur að hafa horft á þetta.
Hvað er að?
Vantar svona tilfinnanlega eitthvað til að fjalla um í fjölmiðlum?
Er skortur á fréttum núna?
Það er skárra að hafa síðurnar auðar en að vera að fylla þær upp með þessum þvælum sem boðið er uppá.
Kynlífsmyndband þar sem sést fréttatími í sjónvarpi og lak á fleygiferð í spegli til hliðar og borgarfulltrúi fékk rauða,hnésíða 66° norður regnkápu í afmælisgjöf frá eiginmanninum .
Bjóðiði betur en þetta!!!
Sláandi kynlífsmyndband | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Þetta kemur beint úr handbókinni hans Dr. Joseph Goebbels, en hann var einmitt áróðursmeistari Hitlers á sínum tíma. Þetta er bara með smá nútíma áherslum svo þú hugsir ekki um Hitler þegar þú sérð þetta.
Davíð, 5.9.2013 kl. 19:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.