9.2.2014 | 01:49
Fjöldi fólks á ekkert líf lengur.
Símarnir og spjaldtölvurnar eru farnar að taka svo mikinn tíma af mörgu fólki að í raun má segja að það eigi sér ekkert líf lengur.Allt snýst um símann eða tölvuna. Við morgunverðarborðið eru engar samræður lengur þar sem annar eða báðir aðilarnir eru í tækjunum,heima í hádeginu talast fólk ekki lengur við,það bítur í sasmlokuna og hamast í tækjunum og þegar komið er heim á kvöldin eða seinnipart dags er hamast í tækjunum við matarborðið,engar samræður og ekkert samneyti við aðra.Svo er setið í sófanum og reynt að fylgjast með dagskránni í sjónvarpinu en það tekst varla vegna þess hveru báðir eða annar aðilinn er upptekinn í spjaldtölvunni eða símanum.............því miður þekkir maður mörg svona dæmi af heimilislífi í dag ef líf skildi kallast og það sem meira er,allt fer orðið á facebook hjá mörgum svo margir eiga hvorki líf né einkalíf lengur.
Er smartsíminn að eyðileggja sambandið? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Já það er mikið til í þessu hjá þér Júlíus
Jón Sveinsson, 9.2.2014 kl. 13:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.