2.3.2015 | 22:27
Ha ha ha enn eitt gott dæmi um.....
þegar ungt fólk veit ekki um hlutina en það sorglega við þetta er að svona lagað er að koma upp nokkuð reglulega í verslunum. En kannski það sorglegasta við þetta allt er að unga fólkinu er alveg slétt sama þó það viti ekki hlutina.........það bara yptir öxlum og segir OK!
![]() |
Sagði 10.000 krónur ekki vera til |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sæll Júlíus,þannig er það því miður oft,en ég vil bæta við,að jafn oft er þeim ,hent, inn án greinargóðra lýsinga á starfinu.Þau segja góðan daginn og kunna á sjóðvélina og kortalesarann,búið.Annað ávinna þau sér með reynslu,en ég get alveg skilið að verslunarstjóri telji ekki nauðsynlegt að skýra frá kr.10.ooo,seðlinum þótt hann sé lítið í umferð.
Helga Kristjánsdóttir, 3.3.2015 kl. 00:41
Þótt eldra fólk noti stóra seðla eins og ekkert sé þá hefur þetta mun meira gildi fyrir krakka sem hefur kannski 1200-1800 kr á tímann, þá bæði notar ungt fólk ekki seðla og finnst skrýtið að aðrir veifi stóru seðlum eins og ekkert sé.
Kristján Haukur Magnússon, 3.3.2015 kl. 01:04
Haha, - man kannski einhver eftir "skitti" frá fóstbræðrum (held ég) sem hét "maðurinn sem sagði uuu". Þá var Jón Gnarr í hlutverki manns sem reyndi að borga með hinum nýja tvöþúsundkalli.....
Jón Logi Þorsteinsson, 3.3.2015 kl. 09:00
, ... til hvers er verið að hafa "hálfvita" við störf í verslunum,... ? er það vegna þess að stjórnendurnir eru einnig "fávitar", ... ?... ég bara spyr ?
Tryggvi Helgason, 3.3.2015 kl. 16:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.