Bloggfærslur mánaðarins, október 2014
2.10.2014 | 16:23
Gott hjá þeim en.............
Gott hjá Arion bankanum að sjá að sér og fella niður þetta siðlausa sjálftökugjald sem hefur staðið yfir sl.3 ár?
En hvað þá með þá sem hafa greitt þetta gjald sl.3 ár?
Ætlar Arion banki að endurgreiða þeim?
Og hvað er þetta há upphæð sem bankinn hefur tekið sér þarna?
![]() |
Arion banki fellir niður gjaldið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.10.2014 | 13:17
ammmmmm mjög svo,bestu vinir.
Það sýndi siog hversu sterk,traust og mikil vináttan var og er þegar Huang Nubo vildi kaupa eða leigja Grímstaði á Fjöllum.
Allt gert til að stoppa það af og koma í veg fyrir það því talið var að Kinverjar væru á bakvið þetta og ætluðu að sölsa undir sig norðurslóðir eða eitthvað þaðan af verra.
Traust og góð vinátta þetta.
![]() |
Telja Íslendinga áreiðanlega vini |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.10.2014 | 09:21
löglegt rán
Þetta gæti flokkast undir löglegt rán má segja enda hefur að virðist enginn neitt um bankana að segja og enginn veit í raun hver á þá enda virðist sem þeir geti farið sínu fram.
Að skila hagnaði uppá milljarða og kreppunni eftir hrunið er langt í frá lokið sýnir manni bara hverslags plokk er þarna í gangi,það er plokkað af viðskiptavininum eins og hægt er og rúmlega það. Gjöld tekin orðið fyrir allt og ekkert(oftast nær ekkert) og stolið af fólkinu vinstri hægri.
Dæmið sem þessu fylgir er ekkert einsdæmi og þau eiga örugglega eftir að verða fleiri.
![]() |
Sat eftir með aðeins 72 krónur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |