Bloggfærslur mánaðarins, maí 2015

Lágkúra af VR

Stéttarfélag sem stærir sig af launajafnrétti,jafnrétti almennt og segist standa framarlega í að jafna stöðu fólks og fl.en er svo um leið með kröfu um að lágmarkslaun séu 245.000 kr árið 2015 á Íslandi er ekki mikið ða berjast fyrir láglaunafólk.

Að koma með kröfu uppá 2435.00 í lágmarkslaun þegar önnur félög eru með um 300.000 kr kröfu segir sig sjálft að það félag er ekki mikið ða hugsa um láglaunafólkið hjá sér.

Það er löngu vitað að enginn getur lifað á þessum launum hér á landi enda kalla ég þetta þrælahald en ekki launagreidda atvinnu.

Að bjóða fólki laun uppá 211-214 þúsund krónur fyrir fulla vinnu og fullt starf eins og það heitir kallast þrælahald en ekki launuð atvinna.

Kosningar fóru fram um verkfallsboðun á vegum VR og lauk þeim í dag......af þessu ofanskráðu tók ég ekki þátt í þeim og kaus ekki.

Hvað skildu svo topparnir hjá VR hafa í laun?


mbl.is Samþykktu verkfall hjá VR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Breyta reglugerðum

Gott tækifæri núna til að breyta þvingandi og óþarfa reglugerðum.

Að það skuli ekki vera hægt að slátra grís eða kjúklingi árið 2015 á íslandi án þess að þa ðsé hangandi yfir því einhver dýrtalæknir segir allt sem segja þarf.

Þetta er jafn hlægilegt og það er heimskulegt,fáránlegt og grátlegt.


mbl.is Kjúklingur kominn í verslanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

það má allt í knattspyrnu

Það má allt í knattspyrnu og skiptir engu hvað það er,jafnvel fremja morð.

Ef ég hrinnti manneskju svona á vegg og hún létist í kjölfarið þá væri ég sekur um morð og yrði dæmdur þannig en það er örugglega ekki svoleiðis í knattspyrnu.

Að horfa á þetta og margt annað sem viðgengst í þessum boltaleik stóru vanþroskuðu strákanna þá er maður hissa á því að það skuli ekki vera búið að banna þetta fyrir löngu síðan.

Áhorfendapallar hrynja og tugir farast,tugir og hundruðir troðast undir,götubardagar á milli áhanganda fyrir og eftir leiki og áhorfendapallar brenna og aðrir tugir farast.....slysin,meiðslin og annað sem þessu fylgir kosta svo milljarða á ári en allt kemur fyrir ekki...allt er leifilegt að því er virðist en það væri búið að banna margt annað og margar aðrar íþróttir ef þetta væri svona í þeim svo ekki sé talað um hversu slæmt fordæmi þetta gefur með mannsalinu sem á sér stað þarna ofan á allt annað.

Að selja manneskju er mannsal og skiptir þá engu hvort það er í bolta.vinnu eða einhverju öðru,manneskjan er seld enda snýst þetta ekkert lengur um leik eins og fótbolti gerði í upphafi þetta snýst um peninga,græðgi,völd og mannsal og telst svo til íþrótta.


mbl.is Lést eftir að hafa lent á steinvegg (myndskeið)
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott dæmi um reglugerðar farganið og íslenskan fáránleika

Staðan í alifugla og svína málunum í dag vegna verkfalls dýralækna er einn eitt góða og skýra dæmið um hvernig fáranleiki og reglugerða farganið skemmir fyrir og í raun stendur þessu þjóðfélagi fyrir þrifum.

Að það skuli ekki vera hægt að slátra einum grís eða kjúklingi á íslandi í dag árið 2015 án þess að dýralæknir sé við sýnir það glöggt og að innfluttnigur á fóðpri skuli stðvast vegna sama verkfalls. Hvað gerir dýralæknir t.d. varðandi fóðrið annað en að skoða skjölin og gefa stimpil.....varla smakkar hann það eða hvað?

Það er alveg með ólíkindum fáránleikinn orðið og reglugerðarfarganið sem er víð lýði á þessu landi í dag og löngu kominn tími til að taka á þessu bulli.

Hvernig var þetta áður fyrr? hvað á dýralæknir að gera annað en að labba um,skoða og stimpla? Var ekki verið að innkalla fyrir 4 vikum eða svo kjúklingaholl frá Matfugli vegna gruns um salmonellu smit? Hvar var dýralæknirinn þá? Til hvers að hafa skildu á því að dýralæknir sé hangandi yfir slátruninni ef það er ekki að skila sér betur en þetta?

Eða er þetta bara séíslenska leiðin til að búa til vinnu,auka kostnað og halda matvörunni dýrari hér en annarsstaðar?

Notið tækifærið núna og fellið þessa reglugerð niður.Það hlýtur að vera hægt að slátra kjúklingi á íslandi í dag án þess að hafa rándýran dýrlækni hangandi yfir þessu.

Hvað haldiði að fólki hafi étið hér áður fyrr og við hvaða aðstæður var því lógað?

Við erum komin af þessu fólki og því varð ekki meint af kjötinu sem það át.


mbl.is Stefnir í gjaldþrot hjá bændum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband