30.8.2013 | 23:06
Hafa nú setið aðgerðarlausir í 3 ár........hvað breyttist?
Já afhverju var og hefur þetta ekki verið stoppað fyrr?
Kannski vegna þess að það er engin olía þarna í spilinu eins og í Irak ogt eiturlyfin í Afganistan?
Getum ekki setið aðgerðalaus | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
sýrland er ríkt af olíu, þó ekki eins mikið og nágrannarnir í írak....en það hefur ekkert að gera með að þetta hafi ekki verið stoppað fyrr.
ástæðan fyrir þessum ósköpum í sýrlandi er barátta stórveldanna um áhrif í mið austurlöndum. bandaríkin og EU með nato í fararbroddi sprengdu uppreysnarmenn í líbýu til valda.
þó fjölmiðlar dásami þau ósköp, varð þetta öðrum þjóðum lexía til varnaðar. rússar eru dyggir bandamenn Assad. á meðan bandaríkin reyna á hálf bjánalegan hátt að styðja uppreysnarmennina. sem margir hverjir eru svokallaðir al-Qaeda bardagamenn frá írak. svolítið kaldhæðnislegt, en það vill oft fylgja utanríkis stefnu bandaríkjanna.
ástandið í sýrlandi er sem sagt afleiðing deilna rússlands, íran, EU og USA um áhrif í landinu.
leiðtogar þessarra landa hefðu fyrir lifandi löngu getað komið í veg fyrir þessi ósköp í sýrlandi. en hagsmunir þessarra landa skipta meiru máli heldur en fólkið sem hefur verið slátrað þarna....um og yfir hundarð þúsund manns að mér minnir.
þess í stað eru fjölmiðlarnir komnir í stríðs gírin til að upphefja einhverskonar aðgerðir að hálfu okkar vesturveldanna gegn ríkisstjórn Assad. en fjölmiðlar eru merkilega mikilvægir þegar á að blása til bardaga. þeir nefnilega segja okkur hversu rétt og fallegt það er af okkur að koma á hvíta hestinum(orustuþotunum) okkar og bjarga þessu aumingja fólki frá grílunni Assad....fjölmiðlarnir segja þér hinsvegar ekki það sem ég hef skrifað hér að ofan...
vonandi opnar þetta þér einhvern skilning á því sem er að gerast í sýrlandi.
góðar stundir.
el-Toro, 31.8.2013 kl. 01:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.