Hver drepur hvern?

Ég get ekki skilið afhverju fólk þarf að láta svona þó þessum gíraffa var lógað,það þarf að lóga dýrum um allan heim alla daga eða hvaðan heldur t.d. fólk að kjötið sem það sjálft borðar komi? En ég get vel skilið að fólki hafi mislíkað hvernig staðið var að þessum gjörningi enda ekki dýragarðinum til sóma. Þegar dýr er aflífað er það gert í sérstöku húsi (sláturhúsi) eða þá að það er gert afsíðis og sér. Mér er hins vega fyrirmunað að skilja afhverju þetta fór fram fyrir opnum tjöldum að fólki og börnum sjáandi sem og að rándýrin skuli hafa verið fóðruð með þessu fyrir allra augum. Það hefði vel mátt farga gíraffanum afsíðis svo engin sæi eftir lokun garðsins og gefa rándýrunum kjötið eftir það en það þurfti ekki að fara svona vitlaust og klaufalega að þessu. Þetta var eins vitlaust að þessu staðið frá upphafi til enda eins og hugsanlega hægt var. Það er t.d.vel kunnugt að margir bændur lóga enn heima og nota kjötið og sumt af innmatnum fyrir heimilið.....restin sem ekki er nýtt í fólkið sjálft er gefið hundunum og hvað heldur fólk að verði t.d. um ungviðið sem fæðist á hverju vori í Húsdýragarðinum? Reglur dýragarða eru þannig að það dýr eða afkvæmi þess sem í garðinn er komið fer ekki þaðan aftur lifandi og þessar reglur gilda í Húsdýragarðinum í Laugardalnum.hvað heldur fólk að verði t.d. um litlu kópana,lömbin,kálfana,kiðlingana,grísina,hreindýrkálfana,folöldin og fl.ungviði sem þarna fæðast? Jú þau eru felld á haustin í flestum tilfellum ef ekki þarf að endurnýja.....já akkurat þau eru nefnilega felld/drepin.
mbl.is Sum dýr jafnari en önnur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband