Ljót gata.

Hverfisgatan hefur alltaf verið ljót,í mörg ár hefure hún verið það og svona eins og "slömm" má segja. Húsin við hana hefa flest veril gömul,ljót og illa viðhaldin en nú á að breyta litla ljóta andarunganum í svan og var byrjað á því sl.ár eins og frægt er orðið í fréttum. Og nú vill verktaki rífa eitthvað af gömlu ljótu húsunum og byggja nýtt hotal þarna á svæðinu til að auka streymi á fólki þarna um enda ekki mikið verið um það undanfarna áratugi en hvað? Jú Umhverfis og skipulagsráð Reykjavíkurborgar finnst þessi nýja bygging ekki standast kröfur um útlit og yfirbragð og að ekki sé tekið mið sérkennum húsanna sem eru í kring eða á svæðinu............það var nefnilega það. Finnst þessu ráði Hverfisgatan hafa verið og sé svona falleg að ekki megi reisa þarna hús? Hefur þetta ráð haft fyrir því að labba frá Hlemmi og niður á Lækljartorg og gefið sét tíma til að lita til beggja handa? Finnst þessu ráði að vel hafi til tekist og allt sé í stíl þarna? Eða Lækjargatan.....finnst þessu ráði hún öll vera í stíl.Hvað á t.d. húsið á horni Lækjargötu og Austurstrætis sem gert var upp eftir brunann sem þar varð og umhverfisslysið Harpan sameiginlegt? Finnst Umhverfis og Skipulagsráði Reykjavíkurborgar hafa tekist vel til þarna og húsin séu í samræmi við umhverfið og hvort annað?
mbl.is Telur sig ekki fá að fegra götuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hlöðver Stefán Þorgeirsson

Ég geri mér grein fyrir því að skoðanir þínar eru væntanlega ólíkar mínum, en mig langar að lýsa minni upplifun af Hverfisgötu.

Ég er utanbæjarmaður, það spilar kannski inn í.

Þegar að fór að fara um Hverfisgötu, skömmu eftir að ég flutti suður, kom hún einmitt skemmtilega á óvart.

Fyrir miðri götunni, ofan við hallirnar næst Arnarhóli, fannst mér upplifunun vera svipuð og sú sem ég hef fundið t.d. Í miðbænum á Siglufirði og þegar maður ekur inn í miðbæ Hafnarfjarðar að norðan.

Allt er fullt af agnarsmáum timburhúsum. Þau eru ekki endilega í fullkomnu standi, og sum jafnvel ekkert sérlega falleg, en tilfinningin er að þetta sé alþýðuhverfi. Maður getur sér til um það að alþýðufólk á fyrri hluta síðustu aldar hafi reist sér hús sem miðuðust við þeirra fjáhag, en voru samt mjög myndarlega byggð.

Mér finnst eitthvað fallegt við það og "upprunalegt".

Hlöðver Stefán Þorgeirsson, 4.4.2014 kl. 11:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband