Það verður ekki logið á ......

Það verður ekki logið á landann ef það er frír matrur annars vegar og einhversstaðar í boði. Langar biðraðir myndast því þessi þjóð hefur búið við svo mikin sult og vesæld í langan tíma svo ekki veitir af að koma sér í röðina ef það er á annað borð frítt að éta í boði einhversstaðar. Sérstakt að þetta sama fólk mætir ekki á útifundi eða samkomur sem boðað er til og skiptir það sjálft miklu máli eins og kjarasamninga,lög sem kannski er verið að setja á alÞingi og fleira.Nei þá mæta kannski 100 manns en það er þá kannski bara spurnig fyrir þá sem munu skipuleggja slíkar uppákomur eða fundi  í framtíðinni hvort ekki væri hægt að fá styrktaraðila og bjóða fría súpu,kakó og kleinur,kaffi eða ís og pulsu? Það myndi þá kannski myndast biðröð?
mbl.is Löng bið eftir hamborgurum og rifjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður B Hjartarson

Því miður , Júlíus , þá er ég þér HJARTANLEGA sammála , betur færi ef þú færir með tómt rugl , en svo er ALLS EKKI.

Hörður B Hjartarson, 10.8.2014 kl. 11:15

2 Smámynd: Ellert Júlíusson

Án þess að rýra það að þarna sé kominn staður sem að vekur áhuga minn og ég mun fara á í framtíðinni þá er alveg vit í þessari færslu...

 Spurning með að bjóða upp á grillaðar pulsur og búsáhöld til barnings :) 

Ellert Júlíusson, 11.8.2014 kl. 00:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband