Og hvernig ætlum við?

Það hefur verið spurt að því áður og engin svör fengist og kannski fást þau aldrei og við sitjum uppi með hauskúpuna af miklu magni af byggingum á kolröngum stað þar sem ekkert pláss er fyrir þetta byggingamagn og mun bara auka á umferðar öngþveiti á þessu svæði í borginni sem er nú þegar alveg nóg fyrir. Þetta er mikið magn af byggingum sem kannski seint eða aldrei verða teknar í notkun....annað eins getur og hefur gerst.

Það er nefnilega ekki nóg að byggja bara húsnæðið og hvernig ætla menn  reka þennan spítala?

Í dag höfum við ekki fjármagn til að borga læknum og hjúkrunar fólki laun í takt við þau laun sem þetta fólk fær í nágrannalöndum okkar og erum því búinn og erum að missa mikið af þessu fólki frá okkur.

Við höfum ekki fjármagn til eðlilegs viðhalds á þeim sjúkrahúsum, sem fyrir eru í dag .

Við höfum ekki fjármagn til lyfjakaupa.

Við höfum ekki fjármagn til tækjakaupa

Við höfum ekki fjármnagn til almenns rekstur á sjúkrahúsunum í dag.

Hvernig ætlum við að borga laun,lyf,tæki og reka nýja spítala í dag?


mbl.is Framkvæmdir við nýjan Landspítala hefjast á kjörtímabilinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Karlsson

Það er nefnilega það.

Jónatan Karlsson, 2.11.2014 kl. 07:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband