Hvað lá á ?

Hvað lá á að draga umsóknina til baka? Var sambandið sjálft að reka á eftir okkur?

Var ekki hægt úr því sem komið var að láta þetta liggja bara kyrrt inni þar til seinna ef önnur ríkisstjórn vildi vekja upp umræðuna og halda áfram með umsóknar ferlið?

Var þetta eitthvað sem hélt vöku fyrir núvernadi stjórnvöldum?

Það var lögð inn umsókn um aðild í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar og samningaferlið hófst en svo setti núverandi ríkisstjórn samningaferlið á salt eða í bið.Mátti málið ekki bara standa þannig áfram?


mbl.is Töldu tillöguna heldur ekki bindandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Núverandi ríkisstjórn setti ekki samningaferlið í bið; það gerði fyrrverandi ríkisstjórn.  Þetta eiga allir að vita sem hafa fylgst með.

Kolbrún Hilmars, 16.3.2015 kl. 16:30

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Hvað lá á að draga umsóknina til baka?

Nú auðvitað að koma í veg fyrir að sá misskilningur myndi breiðast frekar út að Ísland ætlaði að ganga í Evrópusambandið.

Sem það ætlar vel að merkja, ekki að gera.

Góðar stundir.

Guðmundur Ásgeirsson, 16.3.2015 kl. 19:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband