Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2014

Og skemmdarverkin halda áfram

Það eru rifin upp tré,það eru málaðar götur,götum er breitt og þær þrengdar,hraðahindranir eins og þær sé fríar skjóta upp kollinum hingað og þangað og helst fleiri en ein eða tvær með stuttu millibili í sömu götunni. Alltaf til peningar í svona vitleysu og enginn axlar ábyrgð anda þarf það kki að borga þetta sjálft það sem tekur ákvarðanir um þessi stöðugu skemmdarverk um alla borg og kosninga loforðin um að hlusta á fólkið og hafa það með í ákvarðanatöku eru svikinn eins og því sé borgað fyrir það enda ekkert öðruvísi en það sem hefur verið við stjórn áður...........það er nefnilega algjört eitur að hlusta á borgarbúana.


mbl.is „Gatan verður hálftannlaus“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getum við ekki sent þeim smjör?

Eru ekki til rúmlega 300 tonn á Akureyri af af írska smjörinu fræga? Getum við ekki hjálpað japönum og sent þeim það? :)


mbl.is Eitt smjörstykki á mann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er dýrt erftirlit.

Það má segja að slíkt eftirlit sé dýrt eða að meðaltali um 1,3 milljónir á ári og enginn kemur nema kannski á tíu ára fresti.

Er það nema von að hlutirnir séu dýrir á Íslandi?


mbl.is Borga árlega en sjá lítið eftirlit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ömurlegt

Já það er ömulegt að fara svona með hlutina og eyðileggja þá.Þetta kostar allt pening þó ódýrara sé en frummyndir og vitað var að þarna voru húsgögn sem fást ekki einu sinni hér á landi og hafa aldrei fengist. Hvað er þá verið að vernda? Ekki CASA og ekki Nepal svo mikið er víst.


mbl.is „Egginu“ og „Svaninum“ fargað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hvernig ætlum við?

Það hefur verið spurt að því áður og engin svör fengist og kannski fást þau aldrei og við sitjum uppi með hauskúpuna af miklu magni af byggingum á kolröngum stað þar sem ekkert pláss er fyrir þetta byggingamagn og mun bara auka á umferðar öngþveiti á þessu svæði í borginni sem er nú þegar alveg nóg fyrir. Þetta er mikið magn af byggingum sem kannski seint eða aldrei verða teknar í notkun....annað eins getur og hefur gerst.

Það er nefnilega ekki nóg að byggja bara húsnæðið og hvernig ætla menn  reka þennan spítala?

Í dag höfum við ekki fjármagn til að borga læknum og hjúkrunar fólki laun í takt við þau laun sem þetta fólk fær í nágrannalöndum okkar og erum því búinn og erum að missa mikið af þessu fólki frá okkur.

Við höfum ekki fjármagn til eðlilegs viðhalds á þeim sjúkrahúsum, sem fyrir eru í dag .

Við höfum ekki fjármagn til lyfjakaupa.

Við höfum ekki fjármagn til tækjakaupa

Við höfum ekki fjármnagn til almenns rekstur á sjúkrahúsunum í dag.

Hvernig ætlum við að borga laun,lyf,tæki og reka nýja spítala í dag?


mbl.is Framkvæmdir við nýjan Landspítala hefjast á kjörtímabilinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ýsan hausuð og flökuð

Það er lúxus að búa við og eða á Blönduósi í dag. Þar þarf ekki að hafa mikið fyrior hlutunum enda er ýsan sem þar vepðist í sjónum undan bænum bæði hausuð og flökuð og mávarnir lifa góðu lífi.
mbl.is Ýsuflakið endaði í goggi mávs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heppnir að þetta skildi koma upp

Þeir voru heppnir að þetta skildi koma upp enda hægt að nota slík mál til að réttlæta skotvopnin og vopnaeignina hjá lögreglunni sem hefur verið í umræðunni undanfarið en þetta kemur á sama stað niður fyrir hinn almenna borgara/þorpsbúa.
mbl.is 260 kílómetrar í næsta sérsveitarmann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræddastir þeir sewm eru óöruggir með sjálfan sig.

Sennilega er það skýringin á því hve heitt sumir eru á móti samkynhneigð,hata samkynhneigða og reyna eins og þeir geta að koma illu orði og illu af stað þar sem samkynhneigð á í hlut að þeir eru sennilega hræddastir um sjálfan sig,eru óöruggir og eiga bara eftir að koma sjálfir útúr skápnum í fyllingu tímans.
mbl.is Fordæmir forstjóra Apple fyrir samkynhneigð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband