Skipta um símafyrirtæki

Ætli maður fari ekki bara að huga að því skipta um fjarskiptafyrirtæki og gefa þessari "risaeðlu" frí og óska bara eftir tilboðum í notkunina. Er búinn að vera í viðskiptum við símann í meira en 30 ár og er með heimilið og fyrirtæki hjá þeim núna í viðskiptum. Reikningarnir eru frá 25-30 þús á mánuði......það þiggur kannski eitthvað annað fyrirtæki þau viðskiðpti frá og með haustinu?
mbl.is Ákvörðun Símans „ákveðin afturför“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

og ekki í fyrsta skiptið og örugglega ekki í það síðasta.

Stefnulaus framkvæmd og eins og borginni sé stjórnað af  eintómum kjánum segir maðurinn já.

Það er alveg rétt hjá honum  og hefur verið svo lengi...bæði stefnulausar og óskiljanlegar framkvæmdir sem og það hafa eingöngu kjánar verið þarna við stjórnvölin lengi og eru enn.


mbl.is „Gjörsamlega stefnulaus framkvæmd“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert breytist,engin ábyrgð fremur venju.

Hversu lengi skildi það líðast í íslensku þjóðfélagi þetta ábyrgðarleysi sem ráðamenn þjóðarinnar eru illa haldnir af og virðist ekki þjaka þá nokkurn skapaðan hlut? Með geðþóttarákvörðun er heil stofnun flutt landshornanna á milli sem kostar tugi milljóna og er á kostnað skattgreiðenda. Er ekki þjóðarbúið nógu illa statt eftir þyrnirósarsvefninn á ráðamönnum þjóðarinnar sem orsakaði hrunið á sínum tíma að það væri meiri Þörf fyrir þessar tugimilljónir sem flutningarnir kosta í eitthvað þarfar en þetta? Og hvernig er með ábyrgðina þeirra sem fara með völdin og gegna þessum embættum um tíma? Er hún engin fremur venju og á það bara að vera þannig? Viðkomandi ráðherra situr í embætti í 4 ár og svo kannski ekki meir en þetta er til frambúðar og það er verið að setja líf fjölda fólks og heilla fjölskyldna úr skorðum með svona gjörningi. En ráðherran fer til síns heima eftir vinnu og ekkert breytist hjá honum. Líf hinna fjölskyldnanna breytist mikið og í sumum tilfellum kollvarpast...fólk flytur ekki með stofnuinni,það missir tekjur,vinnu,öryggi og fl.og þetta fólkk hefur gert skuldbindingar. Þetta fólk er allt með mikla reynslu í því sem það starfar við sem nú fer forgörðum eða tapast og þjóðin tapar á öllu saman en ráðherra heldiur bara sínu striki í lok vinnudags og heldur sínu lífi áfram eftir að hafa skemmt og jafnvel eyðilegat líf margra fjölskyldna og sent þjóðinni óþarfa reikning upp á tugi milljóna.

Bananalýðveldi!


mbl.is Flutningurinn „pólitísk geðþóttaákvörðun“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Trúi því þegar og ef ég sé það.........

Frekar trúi ég því að þetta verði eins og vsk hér um árið sem aldrei skilaði sér til neytenda fremur en annað en fór beint í vasa veitingahúsanna. Ætli það verði ekki eins í sambandi við þetta.

Við skulum bíða og sjá.


mbl.is Ágóðinn fari ekki í vasa kaupmanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 1. júlí 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband