Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2014

Þurfum við á ESB að halda?

Það er spurning ef reglugerðarfarganið sem þaðan kemur gerir lítið annað en að hefta okkur og almenna samkeppni í landinu.
mbl.is Tollar og reglur ESB í veginum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reglugerðar farganið enn til trafala.

Það virðist vera sama hvar komið er niður þá er reglugerða farganið hér á landi til trafala og stendur eðlilegu viðskiptalífi,nýsköpun og mörgu öðru fyrir þrifum. Og það virðist sem svo að það sé enginn áhugi hjá hinu opinbera að breita þessu. Það er sama hverjir fara inná þing og hversu margir nyjir bætast þar við eftir kosningar,enginn sýnir þessu áhuga,enginn tekur á þessu og enginn gerir neitt í þessu. Það kannski verði farið að gera eitthvaðþegar nýsköpun er hætt hérna og stærri fyrirtæki fara úr landi með móðusatöðvar sýnar.Hér eru þvílik boð,bönn og höft í gangi að manni dettur alltaf í hug fyrrverandi Sovértríkin eða núverandi Kína þegar maður les um þetta í fjölmiðlum.
mbl.is Vörugjöld og tollar mesti vandinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og enn er ruglað......

Afhverju skildi þetta nú ekki koma á óvart.......jú vegna þess að þetta er á Íslandi en ekki hvað. Hvernig var þetta nú hér áður fyrr þegar hvali rak á land og fólkið skar þá í flæðamálinu og nýtti þá svo til matar ? Skildi nú um eitt kíló af hvalbeinamjöli í um 2000 litrum af vökva skaða einhvern? Reglugerðafarganið og bullið sem er orðið til hér á landi í dag er ekki heilbrigt eða eðlilegt og stendur orðið þjóðfélaginu,nýsköpun,fyrirtækjum og einstaklingum fyrir þrífum. Nú orðið skal allt vera svo vacum pakkað,gerilsneitt,fitusprengt,sótthreinsað og hvað þetta heitir allt saman að þetta er helst dauðara en lík........og við étum þetta og hér grassera svo noroveirur sem aldrei fyrr ásamt allskonar skitupestum og meltingatruflunum vegna þess að fólkið er hætt að þola alla skapaða hluti þó vitað sé að líkaminn þurfi á bakteríum að halda til að virka og starfa eðlilega. Og eins og venjulega þá lærum við ekkert en höldum áfram á sömu braut og helst með fleiri og nýjum reglugerðum og sótthreinsunum og skiljum svo ekkert í því hvað margir eru að fá í magann....dööööööööööööööööööööö!

 


mbl.is Banna framleiðslu hvalabjórs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Falleg hugsun,fallegt verk en ......

Það er svolítið sérstakt finnst manni þegar lesið er um munaðarlaus börn á heimilum eins og t.d. í Rússlandi,Ukraínu,Rumeniu,Afríku og víða um heim ,jafnvel börn frá hamfarasvæðum sem misst hafa báða foreldra sína að það skuli þykja betur fyrir þeim komið að vera á  þessum heimilum en ekki að fólk sem vill og hefur efni á að taka þau að sér fái það. Það er til mikið af fólki sem væri tilbúið að taka barn eða börn að sér,ala það upp,veita því heimili,öryggi og ást,menntun og framtíð en það fæst ekki leifi til að ættleiða þessi börn. Þetta er svolítið sérstök og skrítin hugsun/stefna svo ekki sé meira sagt.
mbl.is Alsæl með tannbursta og tannkrem
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurtekin mistök fjölmiðla.

Hvað eftir annað þegar fjallað er um Brúnegg þá eru birtar myndir af Landnámshænum samanborið myndin sem þessari frétt fylgir enda margir sem standa í þeirri meiningu að þessi brúnu egg séu úr íslensku Landnámshænunni.

Svo er ekki!

Brúneggin koma úr brúnum hænsnastofni sem er innfluttur og ræktaður í Noregi og er alls óskildur hinni Íslensku Landnámshænu. Egg Landnámshænunnar eru næstum hvít,föl gul,rjómagul og alveg upp í að vera drapplituð en aldrei brún. Þegar eggin eru brún,drifhvít,græn,bleik og í öðrum litum er það genatengt og viðkomandi fugl/tegund verpir einfaldlega þannig litum eggjum.

BRÚNU EGGIN ERU ÞVÍ EKKI ÚR ÍSLENSKU LANDNÁMSHÆNUNNI!


mbl.is Brúnegg hætta við verðhækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott hönnun.

Flott og skemmtileg hönnun hjá þeim. Það er vonandi að þeir geti hannað þetta áfram og selt og að dæmið gangi upp hjá þeim.
mbl.is Fljúga hátt á Vatnaflygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg sammála henni en.....

hvað er langt síðan hún var sjálf í ríkisstjórn? Og hvað gerði sú stjórn? Jú hún hækkaði allt sem hægt var að hækka og bjó til nýja skatta ef hún gat því nú skildi almenningur klára að borga fyrir hrunið.Við fengum að borga bankana eftir hrun og koma þeim á lappirnar aftur og nú skildum við borga restina.

Hvernig er það með fólk sem fer eða kemst inná þing? Hvað kemur yfir þetta fólk sem við hin erum laus við? Afhverju virðist allt þetta fólk detta úr eða vera úr taksti við allan raunveruleika? Og hvernig er það,komast þeir frekar á þing sem eru með gullfiskaminni eða eru yfir höfuð algjörlega minnislausir?


mbl.is Ríkisstjórnin sýni fordæmi og lækki gjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skiptir það máli?

Varðar það eitthvað efnahag eða afkomu þjóðarbúsins hvort maðurinn haldi fram hjá vkonu sinni ef hann á hana á annað borð,eigi hjákonu,sé giftur eða yfir höfuð fái eða geri það?

Hverjum kemur þetta við? Eiga ekki allir rétt á einkalífi? Líka þó þeir séu forsetar? Kemur þjóðinni það eitthvað við hvort forsetinn  fáið það almennt eða sé að gera það? Hvurslags bull er þetta eiginlega að verða í þessum heimi?


mbl.is Þrýst á Hollande að upplýsa þjóðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löngu farinn og látinn......

en vegna sjálfselsku og eigingirni annarra var honum haldið gangandi með aðstoð tækja í 8 ár.
mbl.is Ariel Sharon látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert lát á bullinu.

Og enn er ekkert lát á bullinu í þessu þjóðfélagi.

Hvað gerði það til þó jólabjór væri seldur á mena hann er til? Ekki færi ATVR á hausinn þó það seldi þennan bjór á okurverðinu sem hér er á öllu út janúar t.d.

Merkilegt hvað hægt er að viðhafa mikið bull árið 2014 í einu litlu þjóðfélagi.


mbl.is Farga óseldum jólabjór
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband