Blygðunarsemisbrot

Mér finnst það alltaf jafn fyndið en jafnframt vitlaust þetta með okkur mannfólkið og kynfærin. Þetta virðist vera svo mikið feimn ismál og feluleikur þó okkur öllum sé vel kunnugt um hvernig bæði kynin eru sköpuð. Ekki er ég að mæla með því ða fólk sé almennt að sýna kynfærin á sér á skemmtistöðum eða á öðrum stöðum en varðandi þessa frétt sem hér fylgir þá verður maðurinn kærður fyrir blygðunarsemisbrot því hann beraði kynfærin á sér fram í lögregluna. Segjum sem svo að þessir sömu lögreglumenn færu í sund t.d. og þessi maður væri staddur þar.Allir berrassaðir í búningklefanum og í sturtuklefanum og sömu kynfærin blasa við ......en ekkert blygðunarsemisbrot.

Þetta blygðunarsemisbrota kjaftæði alltaf hreint þegar einhversstaðar sést í kynfæri..............jú það fer um aulahrollur.


mbl.is Beraði kynfæri sín á skemmtistað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband